framhaldsskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa ræðu. Þarna er komið inn á tvennt. Ég held að við séum sammála um mikilvægi nemendafélaganna og að þau séu rekin á forsendum nemendanna sjálfra og þeirra sem þar starfa. Ég þekki það nú bara af eigin raun að hafa verið kallaður inn á teppið hjá skólastjóranum, bæði sökum eigin hegðunar en einnig atriða sem upp komu í rekstri þessara nemendafélaga. Það er óneitanlega oft þannig. Hér er hins vegar verið að setja þennan ramma í lögin sjálf og þá þarf auðvitað að vera einhver raunveruleg og gild ástæða fyrir því. Ákvæði núgildandi laga um skólabrag, af hverju nægir það ekki sem slíkt? Hvers vegna þarf að ganga lengra og setja þessi afskipti sem óumdeilanlega verða inn í lögin sjálf?
Varðandi innritunina þá er það auðvitað rétt hjá hv. þingmanni að umboðsmaður Alþingis hefur minnst á þetta. Þarna er einmitt verið að tala um atriði, ef ég skil álitið rétt, sem varða nemandann sjálfan. Skólarnir hafi við innritun litið til ólíkra þátta er varða nemandann sjálfan við innritun og því þyrfti kannski að mæla með einhverjum hætti fyrir um það í lögum, styrkja heimildina til þess. Ég staldra hins vegar við það sem varðar ekki nemandann sjálfan. Eins og kom fram í ræðu minni eru það þættir sem verða óhjákvæmilega ósanngjarnir fyrir þann aðila sem verður fyrir þeim. Þar á ég sérstaklega við þessa þætti (Forseti hringir.) sem varða skólasamfélagið, eins og það er orðað í frumvarpinu, og hvernig það yrði svo útfært í reglugerð ráðherrans.