framhaldsskólar.
Virðulegi forseti. Með þessu frumvarpi sem hér um ræðir er ekki verið að endurskrifa allt kerfið heldur er verið að styrkja það sem þegar hefur verið byggt upp. Þetta frumvarp er brýnt til að tryggja að lögin og stjórnsýslan fylgi þeirri jákvæðu þróun sem þegar hefur átt sér stað í skólastarfi og stuðli að því að skólarnir og stjórnvöld geti brugðist við breyttum aðstæðum. Það eru nýjar þarfir, nýjar áskoranir, það er fjölbreyttur hópur nemenda og við þurfum að mæta þeim með sveigjanleika og metnaði. Þetta frumvarp er óháð niðurstöðu um samráð á svæðisskrifstofum. Það er í raun að hefjast samráð, samtal, sem er gríðarlega mikilvægt, niðurstaðan er ekki komin en aftur á móti er samstarfið löngu byrjað. Það þekkjum við mjög vel á landsbyggðinni, og þau sem hafa verið innan skóla þar, sem er gríðarlega mikilvægt. Eins og hér hefur komið fram nær lögbundin þjónusta einungis til náms- og starfsráðgjafar í framhaldsskólum. Þetta kemur einnig fram í fjárlögum; hæstv. heilbrigðisráðherra Alma Möller leggur til aukið fjármagn til að veita sálfræðiþjónustu í framhaldsskólum, sem er gríðarlega mikilvægt.
Mig langar að spyrja hv. þm. Ingibjörgu Isaksen, sem ég veit að hefur mikið talað fyrir geðheilbrigðismálum, hvort hún taki ekki þessum áformum hjá hæstv. heilbrigðisráðherra fagnandi? Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir litlu skólana úti á landi sem hafa ekki bolmagn oft og tíðum til að veita þessa auknu stoðþjónustu.