Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Vestfirðir eru eini landshluti Íslands þar sem enn hefur ekki verið stofnaður þjóðgarður þrátt fyrir einstaka náttúrufegurð og ríka menningararfleifð. Umræðan um þjóðgarð er ekki ný af nálinni heldur hefur legið í dvala undanfarin ár eftir að hafa strandað á pólitískum ágreiningi um uppbyggingu orkuinnviða á þjóðgarðssvæðinu, svæði sem helgast af einum fallegasta fossi landsins, Dynjanda, ef ekki þeim fallegasta, af friðlandi í Vatnsfirði og Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar forseta. Ég tel að nú sé lag að hefja umræðuna á ný og landa þessu mikilvæga hagsmunamáli fyrir fjórðunginn. Mikil undirbúningsvinna hefur þegar farið fram sem unnin var í nánu samstarfi sveitarfélaga á Vestfjörðum og Umhverfisstofnunar. Ljóst má vera að tryggja þarf innviði fyrir svæðið og að stofnun þjóðgarðs komi ekki í veg fyrir þær nauðsynlegu umbætur. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur nú þegar slegið af áform Orkubús Vestfjarða um virkjun í friðlandinu í Vatnsfirði sem hefur truflað umræðuna um þjóðgarð. Þá fækkar álitaefnunum.
Það liggja fjölmörg rök fyrir því að stofna þjóðgarð á Vestfjörðum. Veigamestu rökin eru til verndar dýrmætri náttúru og menningarminjum, að veita almenningi fræðslu og upplifun ásamt því að styðja við ferðaþjónustu. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands áætlar að hver króna sem eytt er í þjóðgarð skili sér þrettánföld til baka. Þjóðgarður skapar líka störf, styrkir ímynd Vestfjarða sem áfangastaðar og laðar að sér nýja fjárfestingu. Þessu til viðbótar má nefna að ferðamönnum að Dynjanda hefur þegar fjölgað um 50% frá 2021 þegar talningar hófust. Þannig að það er þörf fyrir markvissa uppbyggingu á svæðinu til verndar náttúru og stuðnings við ferðaþjónustu sem nú þegar er orðin blómleg. Það er líka ljóst að Vestfirðir geta tekið á móti mun fleiri ferðamönnum og stofnun þjóðgarðs er ein leið í því að dreifa ferðamönnum betur um landið. Ég vil því hvetja hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til að setja aftur í gang vinnu við Dynjandisþjóðgarð, því hann er nefnilega þegar kominn með nafn, í samstarfi við sveitarfélög á Vestfjörðum og aðra hagaðila.