157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

Störf þingsins.

[15:15]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Virðulegi forseti. Í kjördæmavikunni í seinustu viku kíktum við þingmenn Norðausturkjördæmis saman á ráðstefnuna Vestnorden, sem fór fram í 40. skipti og að þessu sinni á Akureyri. Um er að ræða stærsta viðburð íslenskrar ferðaþjónustu sem yfir 500 manns sóttu. Vestnorden er samstarfsverkefni Íslands, Færeyja og Grænlands þar sem fyrirtæki frá þessum löndum kynna framboð sitt fyrir erlendum kaupendum frá um 30 löndum. Á ráðstefnunni var lögð áhersla á að markaðssetja Ísland allt sem heilsársáfangastað; markmið sem við öll í þessum sal ættum að deila. Við þingmennirnir sem sóttum ráðstefnuna áttum þarna mörg dýrmæt samtöl við ferðaþjónustufyrirtæki, hagsmunasamtök þeirra, erlendar ferðaskrifstofur og fleiri. Í þeim samtölum var lögð áhersla á fyrirsjáanleika þegar kemur að stefnumótun hins opinbera. Vert er að minnast á innviðagjaldið sem er allt of hátt og var lagt á með litlum sem engum fyrirvara í fyrra. Afar vondar afleiðingar þeirrar ákvörðunar blasa við okkur úti um allt land. Ég vil sjá okkur stíga stærri skref hér í þinginu til að lágmarka skaðann og viðhalda samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar fyrir skemmtiferðaskip.

Á ráðstefnunni ræddum við einnig mikið um Akureyrarflugvöll sem aðra gátt inn í landið og það mikilvæga hlutverk sem hann hefur að gegna við að dreifa ferðamönnum út um allt land. Brýnt er að bæta aðflugsbúnað á Akureyrarflugvelli en fyrr á árinu þurftu þotur frá Edelweiss og Transavia að hætta við lendingar sökum þess hve flugvöllurinn var vanbúinn. Einnig þurfum við að efla Flugþróunarsjóð, bæði til að halda í þann árangur sem hefur náðst en einnig til að fá ný flugfélög að borðinu. Svo er það efni í aðra umræðu hvort og þá hvenær Icelandair, okkar stærsta flugfélag, ætlar að stíga skrefið. Það er mikilvægt að við sem þingheimur stöndum vörð um ferðaþjónustuna sem atvinnugreinar og leggjum okkar af mörkum svo að hún megi halda áfram að vaxa og dafna úti um allt land.