Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.
Virðulegi forseti. Það hefur verið virkilega gaman að sjá að störf mín hafi orðið ríkisstjórninni mikil hvatning. Nú ætlar Viðreisn að vinda ofan af jafnlaunavottuninni sem hún kom á. Það á að ráðast í afblýhúðun, afnema áminningarskylduna og einfalda heilbrigðiseftirlit. Ég hef hins vegar saknað sárlega tillagna varðandi ríkisframlög til stjórnmálaflokka en ég hef margsinnis lagt hér fram frumvarp um sem snýr að því að lækka þessi framlög. Frá því að lög um starfsemi stjórnmálasamtaka voru sett árið 2006 hafa ríkisframlög til stjórnmálaflokka margfaldast. Nú eru ríkisframlögin helsta tekjulind stjórnmálaflokka og hafa flokkarnir í raun verið gerðir að ríkisstofnunum. Framlögin koma vel að merkja til viðbótar við framlög til stjórnmálaflokka í formi aðstoðarmanna og starfsmanna þingflokka sem eru ákvörðuð í fjárlögum.
Virðulegi forseti. Við sem höfum starfað árum saman í stjórnmálastarfi, frá því áður en lögin voru sett, höfum séð hvaða áhrif þessi háu ríkisframlög hafa haft á stjórnmálastarfsemi. Há ríkisframlög leiða til þess að tengsl við flokksmenn og atvinnulíf minnka, enda þurfa flokkarnir sífellt minna á þeim að halda í öruggum faðmi hins opinbera, hinum slævandi, kæfandi faðmi hins opinbera. Grundvöllur þess að stjórnmálaflokkar séu hornsteinn lýðræðis í landinu er sá að þar fari fram virk starfsemi og þjóðmálaumræða, en ríkisvæðingin hefur dregið úr hvata flokkanna til að sinna því hlutverki. Það er öfugþróun enda eru stjórnmálaflokkar ekkert annað en skipulögð lýðræðisleg samtök fólksins sem þá mynda.
Það er því ekki úr vegi að spyrja hæstv. ráðherra að því, ráðherra sem situr í ríkisstjórn sem talar mikið um hagræðingu, hvað honum finnist um þessi ríkisframlög til flokkanna. Hvað finnst hæstv. ráðherra um það að íslenskir stjórnmálaflokkar hafi fengið um 11 milljarða frá ríkissjóði frá árinu 2010 í beinum framlögum einum og sér? Er þetta ekki einmitt angi sem hefur ekki verið litið til varðandi hagræðinguna sem hæstv. ríkisstjórn er svo tíðrætt um, hagræðingaráform sem hæstv. ráðherra hefur jafnvel sagst vera spenntur fyrir? Ríkisstjórnin auglýsti jú eftir tillögum frá almenningi að hagræðingu og ég þykist vita það að tillaga hafi borist varðandi lægri styrki til stjórnmálaflokka. Sú sem hér stendur sendi nefnilega inn slíka tillögu ásamt reyndar mörgum öðrum.
Virðulegi forseti. Mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra sérstaklega út í ríkisframlög til kosningabaráttu stjórnmálaflokka sem tilgangur laganna umræddu var að draga úr. En telur hæstv. ráðherra að þessi ríkisframlög hafi þjónað því markmiði?
Að lokum, með vísan til nýlegrar umfjöllunar m.a. Morgunblaðsins, sem upplýsti um þessi ríkisframlög án þess að skilyrðin væru uppfyllt, telur hæstv. ráðherra að herða þurfi reglur og eftirlit með þessum framlögum til stjórnmálaflokka eða er ásættanlegt að svo háar fjárhæðir séu reiddar af hendi ríkisins án þess að skilyrði til þess séu uppfyllt og eftirliti með því sé ábótavant? Hvaða skilaboð eru það þá til borgara þessa lands?