157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.

[15:58]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Það gat nú verið að Samfylkingin og kannski Sjálfstæðisflokkurinn færu að rífast um hver hefði nú átt mestan þátt í því að þetta sé komið út í algjörar ógöngur. Ég held að fólkið í landinu eigi alveg rétt á því og hafi rétt á því að stjórnmálastéttin taki þetta meingallaða lagaumhverfi til rækilegrar skoðunar. Það kom svo berlega í ljós í fyrra að það var bókstaflega ekkert eftirlit með þessu kerfi. Það kom berlega í ljós. Upphæðirnar eru orðnar það háar að mínu mati að það má vel skoða það, og við verðum að vera fólk til að ræða það, að færa þetta eitthvað niður. Ég tók eftir því að hæstv. ráðherra svaraði ekki spurningu málshefjanda um það hver hans afstaða væri. Það eina sem hann sagði var að þetta myndi lækka að raungildi vegna þess að upphæðirnar væru þær sömu og á síðasta ári. Menn verða auðvitað að lýsa sinni skoðun. Er þetta of hátt eða ekki? Mín afstaða er sú að þetta er orðið allt of hátt og þetta þarf að lækka og við þurfum að vera fólk til að taka á þessu. Það er auðvitað ekkert í lagi að stjórnmálaflokkarnir séu algerlega undir ríkið settir að þessu leytinu til. Kosningabarátta er auðvitað allt öðruvísi núna en hún var fyrir nokkrum árum síðan þegar auglýsingakostnaður var miklu hærri. Í dag fer þetta að mestu fram á samfélagsmiðlum, í einhvers konar hlaðvörpum og svo auðvitað að búa til einhvers konar ímynd sem gerist helst á samfélagsmiðlum.

Það er löngu kominn tími til að endurskoða þetta til lækkunar en auðvitað þarf jafnframt að bæta lagaumhverfi í kringum þetta þannig að stjórnmálaflokkar geti — og ég tel það ekki vera hagsmunaárekstra þótt stjórnmálafólkið í landinu sé í tengslum við atvinnulífið og njóti einhverra styrkja þaðan ef þeir eru innan hóflegra marka.