Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir að setja þetta mál á dagskrá. Áður en lög um fjármál stjórnmálaflokka tóku gildi 2007 þá bar engum flokki skylda til þess birta almenningi upplýsingar um sín fjármál. Breytingin var því heillaskref og mikilvægt skref þar sem sameiginlegur rammi um gagnsæi og upplýsingagjöf styrkti traust og jafnaði leikinn, sem rannsóknarskýrsla Alþingis síðar undirstrikaði. Frá 2007 hefur meginskyldan staðið þótt gerðar hafi verið á henni einhverjar breytingar en þá var ójafnræði milli flokka augljóst. Persónuleg tengsl, aðstöðumunur og óljósir fjárhagsstraumar veiktu jafnræðið.
Það er afar mikilvægt að standa vörð um lýðræðislega stjórnmálastarfsemi og opna og heiðarlega umræðu í samfélaginu, það er ótvírætt. Lýðræðið byggir á trausti, trausti almennings til þeirra sem taka ákvarðanir og trausti til þess að leikreglur stjórnmálanna séu skýrar og sanngjarnar. Í því samhengi skiptir miklu máli að stjórnmálasamtök hafi raunhæf tækifæri til þess að fjármagna starfsemi sína og með því er lagður grundvöllur að því að þau geti sinnt lýðræðislegu hlutverki sínu, stuðlað að virkri þátttöku almennings og uppfyllt markmið laganna um starfsemi stjórnmálasamtaka; efla traust, tryggja sjálfstæði og skapa gagnsæi í stjórnmálum. Það er jafnframt grundvallaratriði að lögin séu skýr, að eftirlit með ráðstöfun fjármunanna sé traust og jafnvægi ríki milli opinberra fjárframlaga og þess fjár sem hægt er afla frá einstaklingum og lögaðilum. En þegar lög um starfsemi stjórnmálasamtaka eru endurskoðuð þá er nauðsynlegt að það gerist í þverpólitískri sátt og samvinnu eins og hefur verið gert hingað til. Við vitum að sjónarmið geta verið ólík, og það hefur komið hér fram í dag, bæði um heildarfjárhæðir og viðmið styrkja en einmitt þess vegna þarf samráð og gagnsæi að vera leiðarljós. Við þurfum líka hafa í huga að það er afar mikilvægt þegar kemur að ríkisfjárframlögum til stjórnmálaflokka einmitt til þess að efla lýðræðislega umræðu, að því hlutverki sé sinnt.