157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.

[16:06]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé ekkert óeðlilegt að við ræðum hér þá umgjörð sem við höfum um fjárframlög til stjórnmálaflokka af hendi ríkisins. Við munum öll eftir umræðunni sem átti sér stað núna fyrir nokkrum mánuðum síðan um fjárframlög til Flokks fólksins sem hafði þegið yfir nokkurra ára tímabil 240 milljónir án þess að uppfylla skilyrði um að vera stjórnmálaflokkur. Er eitthvað óeðlilegt að við ræðum t.d. fjárframlög til flokka sem eiga ekki þingmann á Alþingi, sem ná ekki inn þingmönnum? Ég held að það gefi okkur a.m.k. tækifæri til umhugsunar að horfa á farsann sem er búinn að vera í kringum Sósíalistaflokk Íslands þar sem er komin ný stjórn en samt er verið að rífast um hvar peningarnir eru og þeir eru einhvers staðar í einhverjum ehf.-um úti í bæ. Er engin ástæða til þess að velta fyrir okkur hvernig við erum að fara með skattfé? Þetta hljómar allt mjög vel, þetta er allt til þess að auka lýðræðið og lýðræðislega umræðu. En svo sjáum við bara birtingarmyndir af því hvernig er verið að fara með þetta fé og þá hljótum við að geta staðið hér og velt því fyrir okkur: Hvernig ætlum við að gera betur í því? Erum við að borga of mikið? Er það eðlilegt að borga flokkum sem ná ekki inn þingmönnum hundruð milljóna í fjárframlög frá skattgreiðendum? Af því að þetta er ekki almannafé, þetta er skattfé. Og skattfé sem við fáum frá skattgreiðendum verðum við að bera virðingu fyrir. Þegar við erum hér að úthluta okkur og okkar flokkum fé þá hlýtur að vera eðlilegt að við veltum því fyrir okkur af því að það er svo auðvelt að gefa aðeins meira í fyrir okkur þegar það eru skattgreiðendur sem eiga að borga brúsann.