157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.

[16:08]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að hefja þessa umræðu og tek undir það sem síðasti ræðumaður nefndi áðan, hv. þm. Jens Garðar Helgason, að auðvitað eigum við að taka okkur tíma til að velta þessu fyrir okkur og við eigum að vera gagnrýnin á fyrirkomulagið og við eigum að skoða það á hverju einasta ári. En mér finnst hins vegar mikilvægt að við höfum forsöguna svolítið skýrt í huga. Það var þannig fyrir hrun, árið 2006, að það kom í ljós að tveir flokkar, Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin, höfðu þegið styrki upp á tugi milljóna króna, Sjálfstæðisflokkurinn upp á 25 og 30 milljónir frá FL Group og Landsbankanum og Samfylkingin frá einhverjum fjórum aðilum mjög háar upphæðir. Þetta var gagnrýnt af Ríkisendurskoðun og það var mikil umræða í samfélaginu um það á hvers vegum þessir stjórnmálaflokkar væru. Viðbrögð flokkanna, man ég nú sérstaklega eftir því vegna þess að eldarnir brunnu heitar á Sjálfstæðisflokknum en Samfylkingunni í þessu tilliti, voru að mörgu leyti mjög góð. Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að þetta væri ekki í anda þess sem Sjálfstæðisflokkurinn vildi. En þarna vorum við einmitt að ræða, af því að það var verið að tala um hinn kalda faðm ríkisins áðan, um samþjöppun viðskiptavalds og stjórnmála. Er það heppilegt? Lendingin varð þessi þverpólitíska sátt um að koma á þessu kerfi sem við búum við í dag. Það er auðvitað ekkert fullkomið en hitt var það svo sannarlega ekki heldur.

Það er eitt orð sem við eigum að hafa í huga í þessari umræðu og það er lýðræði. Stjórnmálaflokkarnir eiga að vera tæki fólksins í landinu til að móta samfélagið, rétt eins og t.d. fjölmiðlar eru líka tæki til að veita aðhald og móta samfélagið. Fjölmiðlar njóta líka ákveðinna ríkisstyrkja eins og við þekkjum. Það á hins vegar að vera algerlega sjálfsagt að ræða þetta, skoða hvort fyrirkomulagið sé heppilegt, hvort hægt sé að sníða af því agnúa, hvort upphæðir séu réttar eða hvort girðingar séu settar upp á réttum stað. Síðan ætti líka að vera algerlega kýrskýrt að ef það eru einhverjir stjórnmálaflokkar sem vilja ekki þiggja ríkisstyrk — nefni engin nöfn hér — vilja vera með hreina áru vegna þess að þetta er allt svo slæmt (Forseti hringir.) og eru þá búnir að gleyma forsögunni, þá á það auðvitað að vera minnsta mál í heimi fyrir þá flokka að afþakka slíka styrki.