Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir að taka upp þessa umræðu. Hún er mikilvæg og hún er góð. En ástæðan fyrir því að það var þverpólitísk sátt um að setja lög um fjármál stjórnmálaflokka árið 2006, er, líkt og þáverandi forsætisráðherra, Geir H. Haarde, orðaði það svo:
Stjórnmálaflokkar eru hornsteinn lýðræðis í landinu og forsenda heilbrigðrar og eðlilegrar stjórnmálaumræðu. Þeir hafa því mjög víðtækar skyldur gagnvart borgurum landsins og afar mikilvægt að þeir njóti trausts. Sú þverpólitíska nefnd sem vann skýrslu sem frumvarpið byggði á komst að þeirri niðurstöðu að skynsamlegast væri að sníða framlögum einstaklinga og lögaðila til stjórnmálaflokka afar þröngan stakk. Ástæða þess var ekki síst sú breyting sem hafði orðið hér á landi árin á undan þar sem sífellt fleiri fyrirtæki og einstaklingar höfðu fjárhagslega burði til að kosta stóran hluta af baráttu flokka og einstaklinga. Það var sameiginleg afstaða nefndarmanna að mikilvægt væri að draga úr hættu á tortryggni og að skapa gegnsæja um umgjörð um fjárframlög til stjórnmálastarfsemi á Íslandi.
Virðulegi forseti. Það hljóta allir hér inni að vera sammála um það að þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa fjárhagslega burði til að kosta flokka eða einstaka stjórnmálamenn hefur síst fækkað síðan árið 2006. Við höfum einnig orðið vitni að því á síðustu misserum hvernig fjársterkir hópar í samfélaginu veigra sér ekki við að beita fjárhagslegu afli sínu til að hafa áhrif á íslensk stjórnvöld. Rökin sem nefndin beitti fyrir sig á sínum tíma halda því enn. Þó að það séu ákveðnir flokkar hér á landi sem eiga eignir og fjölmenna grasrót sem getur staðið undir flokksstarfi án aðkomu fjársterkra aðila þá eigum við ekki að skrúfa fyrir súrefni annarra flokka sem hafa það ekki, því að eins og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde, sagði: Stjórnmálaflokkar eru hornsteinar lýðræðis í landinu og forsenda heilbrigðrar og eðlilegrar stjórnmálaumræðu.