Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir innleggið og hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt. Það voru að vísu viss vonbrigði að hér skyldi koma upp fræðimaðurinn Daði Már Kristófersson, ekki hæstv. ráðherra, pólitíkusinn. Fræðilega umfjöllun um tilurð laganna geta allir lesið sér til um í greinargerð með lögunum. Hæstv. ráðherra sagði í raun margt í mörgu og gott að spekúlera. Við hljótum að þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir þessa skýru pólitísku sýn. Eftir stendur að við vitum ekkert um afstöðu Viðreisnar til styrkja til stjórnmálaflokka. Það er þó gott að heyra að framkvæmd og eftirlit hefur verið bætt svo flokkar muni ekki áfram getað verið árum saman — árum saman — á ríkisstyrkjum í trássi við lög. Myndin skýrðist samt örlítið þegar hv. fulltrúi samstarfsflokksins, Samfylkingarinnar, kom hér í pontu. Sá flokkur með sína sögu ætti e.t.v. að láta lítið fyrir sér fara, eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson rakti ágætlega áðan, en bíræfnin er slík að hv. þingmenn veigra sér ekki við að skjóta á aðra varðandi þéttingu byggðar og fækkun bílastæða.
Virðulegur forseti. Kanntu annan? En engar áhyggjur, hæstv. ráðherra, við þekkjum það vel að vera í samstarfi þar sem allt er gert til að halda friðinn.
Eins og ég kom inn á í framsögu minni áðan hefur ríkið varið 11 milljörðum af skattfé almennings til stjórnmálaflokka í beinum framlögum frá árinu 2010. Til viðbótar koma svo önnur framlög. Samhliða ríkisvæðingunni lögfestum við talsverðar hömlur á fjármögnun stjórnmálaflokka og þeim þyrfti að létta þegar við loksins, vonandi, minnkum þessa ríkisstyrki. Gagnsæi og þak er mikilvægt, eins og við höfum þegar lögfest, en það er fráleitt að tala um fjárhagslegt sjálfstæði miðað við núverandi fyrirkomulag og ég tek undir með hv. þm. Sigríði Andersen þegar hún gagnrýnir að hér sé það gert tortryggilegt að fólk og fyrirtæki styðji við stjórnmálastarfsemi.
Það er von mín (Forseti hringir.) að líkt þenkjandi stjórnmálaflokkar taki höndum saman, breyti þessu fyrirkomulagi, lækki styrki til stjórnmálaflokka og beri ekki fyrir sig (Forseti hringir.) einhverri sátt heldur einblíni á forgangsröðun og virðingu fyrir almannafé.