Opinber fjárframlög til stjórnmálaflokka.
Forseti. Ég vil þakka þingmönnum fyrir áhugaverða umræðu. Það er greinilegt að sú hugmynd hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur að biðja um þessa umræðu var góð. Hér hafa verið ágæt skoðanaskipti. Það hryggir mig auðvitað að hún deili ekki áliti kollega síns, hv. þm. Jóns Gunnarssonar, sem sagði hér í ræðustól fyrr í vikunni að hann saknaði fræðimannsins og kynni ekki að meta pólitíkusinn en það er gott að heyra að það eru skiptar skoðanir í þeim ágæta flokki um ágæti mitt.
Ég vil að endingu ekki lengja þessa umræðu en taka undir þau orð hv. þm. Sigmars Guðmundssonar að sé stjórnmálaflokkum í nöp við þetta fyrirkomulag er þeim í sjálfsvald sett að biðja ekki um þessa peninga.