157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu o.fl.

156. mál
[16:19]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um fullgildingu þriggja fríverslunarsamninga sem EFTA-ríkin hafa gert nýlega. Um er að ræða uppfærðan fríverslunarsamning við Úkraínu, samning um efnahagslega samvinnu við Malasíu og fríverslunarsamning við Kósovó. Fríverslunarsamningur hefur verið í gildi við Úkraínu frá 2012. Viðræður um uppfærðan fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu hófust um mitt ár 2023 og lauk í desember 2024. Ísland leiddi viðræðurnar fyrir hönd EFTA-ríkjanna og var samningurinn undirritaður í Kyív 8. apríl 2025. Samningurinn undirstrikar áframhaldandi pólitískan og efnahagslegan stuðningi Íslands við Úkraínu og trú á opið og reglubundið viðskiptaumhverfi á alþjóðavísu. Viðræður um samning um efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Malasíu hófst árið 2014 og stóð með hléum þar til þeim lauk í apríl á þessu ári.

Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að undirrita samninginn fyrir hönd Íslands á ráðherrafundi EFTA í Tromsö 23. júní síðastliðinn. Samningurinn styrkir samkeppnisstöðu íslenskra útflytjenda á markaði Malasíu. Hann styður einnig útflutningsstefnu Íslands sem unnin var í samstarfi við atvinnulífið. Þar var lögð áhersla á að bæta aðgang íslenskra fyrirtækja að mörkuðum Suðaustur-Asíu. Þar höfum við náð góðum árangri síðustu ár með fríverslunarsamningum við Taíland, Indland, Filippseyjar, Indónesíu og nú Malasíu. Viðræður um fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Kósovó hófst árið 2022 og lauk árið 2024. Samningurinn felur í sér aukin viðskiptatækifæri en ekki síður áframhaldandi stuðning íslenskra stjórnvalda við sjálfstæði Kósovó og viðleitni stjórnvalda í Pristina til aukinna viðskipta við samfélag Evrópuríkja.

Forseti. Í þingsályktunartillögunni er gerð grein fyrir helstu þáttum fríverslunarsamninganna þriggja. Um er að ræða víðtæka fríverslunarsamninga sem m.a. kveða á um niðurfellingar tolla, skuldbindingar í þjónustuviðskiptum og fjárfestingum, vernd hugverka um viðskipti og sjálfbæra þróun, bætta upplýsingagjöf til lítilla og meðalstórra fyrirtækja og um lausn deilumála ef upp koma. Samningarnir koma einnig á fót vettvöngum fyrir EFTA-ríkin og viðkomandi samningsríki til viðræðna um frekari samvinnu á sviði efnahagsmála. Vöruútflutningur Íslands til ríkjanna þriggja nam ríflega 5,3 milljörðum kr. að meðaltali á ári undanfarin ár, mest til Úkraínu. Vöruinnflutningur frá ríkjunum þremur hefur numið 1,3 milljörðum kr. að meðaltali á ári undanfarin ár, einnig mest frá Úkraínu. Helstu útflutningsafurðir eru sjávarfang, fiskimjöl og lýsi en innflutningur hefur verið afar fjölbreyttur, allt frá timbri til vélbúnaðar og tækja. Þjónustuútflutningur til ríkjanna þriggja nam 2,9 milljörðum að meðaltali á ári undanfarin ár, mest til Malasíu. Þjónustuinnflutningur nam ríflega 1,5 milljörðum kr. að meðaltali undanfarin ár.

Forseti. Með samningunum er lagður grunnur að bættri samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja, fjárfesta og einstaklinga á mörkuðum Úkraínu, Malasíu og Kósovó. Samningarnir kveða á um niðurfellingu tolla á allar helstu útflutningsafurðir Íslands á viðkomandi markaði. Þeir veita einnig íslenskum fyrirtækjum auknar heimildir til fjárfestinga og bæta aðgang íslenskra þjónustuveitenda að viðkomandi mörkuðum. Tollaívilnanir Íslands á landbúnaðarvörum eru á sömu nótum og samið hefur verið um á undanförnum árum í öðrum fríverslunarsamningum sem EFTA-ríkin hafa gert saman. Í langflestum tilfellum er um að ræða afurðir sem ekki eru framleiddar á Íslandi og þar af leiðandi ekki í beinni samkeppni við íslenska framleiðslu.

Í sérstökum kafla um viðskipti og sjálfbæra þróun er í öllum samningunum að finna ákvæði um mikilvægi kynjasjónarmiða í mótun opinberrar viðskiptastefnu. Þá árétta samningarnir alþjóðlegar skuldbindingar sínar hvað varðar umhverfisvernd og vinnuvernd.

Forseti. Það er vissulega nýbreytni að þrír fríverslunarsamningar séu lagðir fram í einni þingsályktunartillögu. Staðreyndin er sú að óvenjumargar fríverslunarviðræður hafa klárast á vettvangi EFTA undanfarin misseri. Almenn sátt hefur ríkt í þinginu um þessa samninga undanfarin ár, auk þess sem þeir eru allir með svipuðu inntaki. Það felst augljóst hagræði í því fyrir alla að sameina umfjöllunina með þessum hætti í eitt þingmál án þess að tækifæri þingsins eða utanríkismálanefndar til að fjalla um samningana sé skert með nokkrum hætti. Á tímum aukinnar verndarhyggju í alþjóðaviðskiptum, þegar tollahækkanir hafa verið frekar í fréttum en tollalækkanir, er það mér sönn ánægja að standa hér í þingsal í dag og mæla fyrir fullgildingu þessara þriggja fríverslunarsamninga.

Forseti. Ég legg til að tillögunni verði vísað til síðari umræðu og til umfjöllunar í utanríkismálanefnd að lokinni þessari umræðu.