fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu o.fl.
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs undir þessari þingsályktunatillögu um fullgildingu uppfærðs fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna og Úkraínu, samnings um efnahagslega samvinnu EFTA-ríkjanna og Malasíu og fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Kósovó. Ég vil líka þakka hv. þingmanni Jóni Pétri Zimsen fyrir hans ágætu ræðu hér áðan. Líkt og hann nefnir, og ég er svipuðum stað, þá er fullgilding þessa uppfærða fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna raunar ekki aðeins efnahagslegt skref heldur líka pólitísk yfirlýsing sem sýnir að Alþingi stendur með Úkraínu, ekki aðeins í orðum heldur í verki. Ég get nefnt það í fljótu bragði að í þeim samtölum sem ég hef átt við forystumenn Úkraínu að undanförnu, bæði þingmenn og aðra, þá hafa þeir lagt mikla áherslu á þennan samning, ekki aðeins á varnarstuðning eða stöðu í þessu grimmilega árásarstríði Rússlands á Úkraínu heldur vilja þau líta fram á við og til þess með hvaða hætti þau geta byggt upp sitt efnahagslíf, bæði núna þegar ráðist er á ríkið en líka til framtíðar. Það er því sannarlega eftir þessu tekið og það eru sannarlega bundnar vonir við að þetta efnahagssamstarf verði öllum til góða. Ég vonast síðan auðvitað til þess að við eigum gott samtal og samstöðu um alla þessa þrjá fríverslunarsamninga í utanríkismálanefnd eins og raunin hefur verið á þessu þingi og hlakka til samstarfs við nefndina. Ég lýsi yfir stuðningi við þessa þingsályktunartillögu og efni hennar.