fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu o.fl.
Frú forseti. Ég vil bara nota þetta tækifæri og taka undir með hv. þingmönnum sem hér hafa talað með jákvæðum hætti um þetta góða mál. Líkt og hv. þm. Pawel Bartoszek sagði þá er þetta ekki bara efnahagsleg ákvörðun og efnahagslega mikilvægt fyrir EFTA-ríkin og fyrir Úkraínu, heldur er þetta líka pólitískt mál, pólitísk yfirlýsing, pólitísk forgangsröðun, að á vettvangi EFTA hafi verið sett í forgang að vinna þetta mál með þessum hætti. Líkt og hv. þm. Pawel Bartoszek nefndi hér áðan er mikil áhersla hjá úkraínskum stjórnvöldum og úkraínsku þjóðinni á að geta sótt fram á grundvelli frjálsra viðskipta við önnur ríki og kannski sérstaklega vini og bandamenn. Raunar er það þannig að hluti af þeirra baráttu gengur einmitt út á það að hafa frelsi til að stunda frjáls viðskipti í samræmi við markaðslögmál bæði sín í milli og við önnur ríki. Því er ekki til að dreifa hjá því ríki sem hefur ráðist með allsherjarinnrás inn í Úkraínu, hvorki innan Rússlands né gagnvart öðrum ríkjum. Þess vegna er ég ánægð að þetta mál sé komið fram og geri fastlega ráð fyrir því að um það ríki þverpólitísk sátt í þinginu og stuðningur við að klára það. Sama áherslu á auðvitað við önnur ríki sömuleiðis.
Þetta er líka jákvætt í eðli sínu þegar nú á undanförnum misserum, og það virðist bara vera að aukast, ekki hefur virst mikið svigrúm eða mikil eftirspurn eftir fríverslunarsamningum yfirleitt. Okkur hefur tekist að ná slíku fram, bæði með fríverslunarsamningi við Indland, en þetta mál ber þess einnig merki. Þá er það líka mikilvægt fyrir okkur sem EFTA-ríki og okkur sem útflutningsdrifna þjóð, mjög útflutningsdrifið hagkerfi, að gera það sem við getum þótt smáríki sé til að standa vörð um frjáls viðskipti og nota þau verkfæri og tól og þá vettvanga sem við höfum til að sækja fram og taka skynsamlegar ákvarðanir fyrir okkur. Í þessu felast mikilvæg pólitísk skilaboð um að við viljum setja í forgang fríverslunarsamning við Úkraínu og vonandi er það líka liður í einhvers konar aðlögun. Vonandi sjáum við Evrópusambandsríki liðka fyrir og setja í algjöran forgang að gera Úkraínu kleift að ganga í Evrópusambandið, sem fyrir þeim er leið til að standa vörð um sitt fullveldi og sjálfstæði, fá aðhald til að fara í þær umbætur sem þarf að gera til að sýna í verki að þau tilheyri Evrópu sem álfu og þeim helstu grundvallargildum sem Evrópa stendur fyrir, og að þau geti boðið sínum borgurum upp á það. Ef það gengur eftir þá verður Úkraína hluti af Evrópska efnahagssvæðinu og þá erum við komin í það umhverfi.
Ég vonast því eftir að þetta muni leysa úr læðingi frekari viðskipti á milli okkar og Úkraínu og annarra EFTA-ríkja. Heilt yfir eru fríverslunarsamningar af hinu góða og við sem útflutningsdrifið hagkerfi og samfélag viljum gjarnan fjölga þeim eins og kostur er, sérstaklega við vini og bandamenn. Þegar heimurinn er eins furðulegur og hann er þessi misserin, og því miður held ég að það sé ekki að fara breytast til betri vegar nema síður sé, þá er gott að við séum hér að setja í forgang og koma með inn í þingið mál sem sýna bæði hvar við stöndum og að við séum í verki að beita þeim tækjum og tólum sem við höfum til að auka enn frekar á frjáls viðskipti og fríverslunarsamninga. Þannig að ég vona bara að þetta mál fari vel í gegnum þinglega meðferð og vonandi að við sem þing hér þvert á flokka styðjum að endingu við þetta mjög svo jákvæða mál.