fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu o.fl.
Forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir þátttöku í þessari umræðu. Það er ákaflega gott að finna hversu samstiga þingmenn eru í afstöðunni til þessa máls. Mig langar sérstaklega til að víkja að þeim ábendingum sem hv. þm. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kom með í sinni ræðu um hversu mikilvægir samningar eins og þessir eru sem pólitískar yfirlýsingar. Þeir þrír fríverslunarsamningar sem við erum að ræða hér í dag að muni verða samþykktir með þingsályktunartillögu innihalda nefnilega tvenns konar pólitískar yfirlýsingar, annars vegar einarðan stuðning Íslands við frjáls viðskipti nú á tímum þegar mjög hallar á slík viðskipti og allt tal um slík viðskipti á alþjóðavísu. Fá ríki ef nokkur hafa haft eins mikla hagsmuni af því í gegnum tíðina að slíkir fríverslunarsamningar séu gerðir, að frjáls viðskipti séu viðhöfð, að það gildi reglur í samskiptum ríkja, heldur en einmitt Ísland. Þess vegna er sú yfirlýsing sem felst í þeim fjölmörgu fríverslunarsamningum sem gerðir hafa verið á undanförnum misserum mjög mikilvæg og sendir skilaboð um afstöðu Íslands en líka um tækifærin sem ríki heims standa frammi fyrir í krafti fjöldans, að standa vörð um það fyrirkomulag sem gefist hefur svo vel í viðskiptum milli landa eftir síðari heimsstyrjöldina. Síðari yfirlýsingin er ekki síður mikilvæg og kom bæði fram í máli hv. þm. Jóns Péturs Zimsens og hv. þm. Pawels Bartoszeks, sem er stuðningur í verki við þá vegferð sem úkraínska þjóðin er á í þeim hörmungum sem að henni steðja um þessar mundir. Það er gríðarlega mikilvægt að við sýnum í verki vilja okkar til að styðja þá vegferð, vilja okkar til að standa með þjóðum í að komast inn í það fyrirkomulag frelsis og frjálsræðis sem hefur gefist íslensku þjóðinni svo vel.
Ég þakka hv. þingmönnum fyrir samtalið og hlakka til að sjá meðferð utanríkismálanefndar á þessu máli, þá væntanlega í þeirri samstöðu sem lesa mátti út úr umræðunni hér í dag.