leikskólar.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér í fimmta skipti fyrir frumvarpi mínu sem varðar heimildir sveitarstjórnar til að haga innritun í leikskóla með fjölbreyttari hætti en nú er heimilt. Ég hef þó í aðeins eitt skipti mælt fyrir þessu máli áður. Þetta er í fyrsta skipti sem ég legg málið fram í þeirri mynd sem það er. Þó vil ég taka fram að í þetta skipti hefur það tekið örlitlum breytingum í góðu samráði við barna- og menntamálaráðuneytið sem var svo vinsamlegt að benda mér á að það þyrfti að framkvæma svokallað hagsmunamat á þörfum barna, út frá börnum, eins og mælt er fyrir um í þingsályktun frá 2021 og byggist á þeim viðmiðum sem eru í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Ég geri örlítið grein fyrir þessu í máli mínu hér á eftir. Mig langar hins vegar til þess að byrja ræðu mína hér í dag á því að segja ykkur svolitla sögu frá því er ég var í mínu fyrra lífi sem starfsmaður Reykjavíkurborgar. Ég vann hjá embætti sem hét umboðsmaður borgarbúa og var í daglegu máli bara kvörtunardeildin hjá borginni. Það var að mörgu leyti áhugavert starf. Það var gefandi þegar maður gat leyst úr hnútum. Stundum gat maður það ekki vegna þess að lögin voru ekki í liði með fólki hverju sinni eða stefnumótun borgarinnar vék einfaldlega í aðra átt en fólk hafði smekk fyrir.
Morgun einn, ég held að þetta hafi verið fyrir góðum tíu árum síðan, hringdi í mig ungur faðir sem var með tvö börn á leikskólaaldri. Eldra barnið var fjögurra, fimm ára, að ég tel, og hið yngra var 18 mánaða eða tveggja ára. Það var alla vega ungt og það var að fara að detta inn á leikskóla. Eldra barnið var í leikskóla hinum megin við götuna. Þau bjuggu í Teigunum og það var komið að því að fá pláss fyrir það yngra. Það barn fékk inni í Árbæ, lengst í burtu, einfaldlega vegna þess að það var ekki pláss á leikskólanum sem var á móti þeim, þar sem eldra systkini barnsins átti pláss fyrir. Þetta var fólk sem var ekki á bíl. Þetta var fólk sem bjó í lítilli kjallarakytru, námsmenn sem fengu bara ekki pláss í námunda við heimili sitt. Þetta ástand varði auðvitað ekki að eilífu en þetta voru nokkrir erfiðir mánuðir þar til leystist úr þessu. Það kallaði á milliflutning og það kallaði á biðlista. Það kallaði einhvern veginn á miklu meira vesen heldur en nokkur rök ættu að liggja að baki
Ég vil bara í þessu sambandi minnast á það að í þessu tiltekna hverfi, Teigunum, eru margir stórir vinnustaðir. Fólk sem þar vinnur býr einmitt mögulega í úthverfinu þar sem þetta barn fékk inni, þ.e. yngra systkinið. Ég vil meina að svona þurfi þetta ekki að vera. Því fór ég aðeins að gramsa og komst að því að ástæðan fyrir því að þessi systkinaforgangur sem er stundaður víða um landið í stærri sveitarfélögum, þar sem þess gerist bara stundum þörf og, hvað skal segja, þar er ekki verið að vinna eftir einhverri annarri röksemd en þeirri að þetta sé einhvers konar brot á jafnræði barna, vegna þess að þetta var einu sinni heimilt. Það er mikilvægt að halda því til haga að fyrir árið 2008 var þetta nefnilega stundað. Þetta var bara eðlilegasti hlutur í heimi, að leikskólastjóri færi yfir umsóknalistann; hér hafa svona mörg börn beðið um að fá að vera á mínum leikskóla, eða þetta var gert miðlægt og þessu var ögn hnikað til. Þessi fór á þennan leikskóla en ekki hinn vegna þess að annað barn átti systkini frá sama heimili o.s.frv.
Niðurstaða borgarlögmanns, eftir að hafa fengið dálítið margar kvartanir vegna þessa, var sú — og ég ætla ekki að draga dul á það — að einhver mismunun kann að eiga sér stað út frá þessari löggjöf sem ég er að mæli fyrir hér, en við erum að gera hana fyrirsjáanlegri. Ég fer aðeins í það á eftir. Það var sem sagt byggt á því að lög um leikskóla væru ekki með nógu fyrirsjáanleg ákvæði út frá því hvaða þáttum mætti mismuna. Á mannamáli var bara ekki búið að setja nógu skýr teikn frá löggjafanum um það hvenær má hnika til og segja við eldra barn, þ.e. sem á ekki systkini: Nei, barn fætt í mars; þú kemst ekki inn á þennan leikskóla vegna þess að barn fætt í nóvember eða ágúst á eldra systkini á leikskólanum, þið verðið að bíða.
Hvernig væri þetta ef þetta væri á hinn veginn, þ.e. ef þetta mál færi í gegn sem samþykkt lög? Þá væri þetta hægt. Það sem við vitum er að núverandi ástand er óboðlegt. Við getum ekki sett fólk í þær aðstæður að það þurfi að kaupa sér bíl á heimilið til að fara á annan leikskóla sem er langt í burtu, aðskilja systkini lengur en þörf krefur.
Ég ætla að segja ykkur frá því að í Reykjavíkurborg eru 66 borgarreknir leikskólar. Í upphafi ársins 2025 voru tæplega 900 börn á biðlistum eftir leikskólaplássi í Reykjavík. Þar af biðu um 460 börn flutnings í annan leikskóla eða rúmlega helmingur. Við þurfum að stytta þennan lista og það allsvakalega. Þetta gefur til kynna að mjög stór hluti þeirra sem eru á biðlistum eftir leikskólaplássi hjá borginni séu þar einfaldlega vegna þess að þau vilja ekki vera í tilteknum leikskóla. Það er líka mikilvægt, áður en ég held áfram, að koma því á framfæri að ég er líka að mæla fyrir því að borginni veitist heimild við innritun að taka til greina heildarhagsmuni út frá búsetu fólks, að mögulega sé einhvers konar kvóti. Ég er ekki með útfærsluna á þessu en kalla eftir því að það sé heimilt að útfæra leiðir sem gera sveitarfélaginu heimilt að segja: Í þennan leikskóla koma börn sem búa í einhverjum radíus við þennan tiltekna leikskóla og hafa forgang.
Ég ætla þó að vera mjög skýr með það, og þetta er mjög mikilvægt, að við flutningsmenn frumvarpsins viljum á engan hátt leggja til skyldu á herðar sveitarfélaga að útfæra þetta í sínar innritunarreglur. Þetta er algjörlega valkvætt úrræði. Ég ætla hins vegar ekkert að draga úr því að þetta vandamál á fyrst og fremst við um Reykjavíkurborg. Ég hef fundið fyrir miklum áhuga á þessu frumvarpi og þessari úrbót, ef svo má kalla, frá því að setjast niður með borgarfulltrúum þar sem við hittumst í síðustu viku, í kjördæmaviku, og fórum stuttlega yfir þetta. Ég hef heyrt þeim sjónarmiðum fleygt fram líka að það þurfi ekki að setja þessi lög, það þurfi bara stundum að kýla á hlutina. Nú er reyndar búið að fara aðeins í kringum bann borgarlögmanns frá 2008 með því að útfæra eitthvað sem heitir systkinatillit. Út frá þeim tölum sem ég nefndi áðan nær það þó ekki alveg nógu langt. Við þurfum að vera skýr og skorinorð með það hvað við viljum gera í innritunarmálum. Ég hef heyrt því fleygt af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins, bæði í borginni og hér á Alþingi, að þessi lög séu ágætislausn en að nú verði borgin að sýna hugrekki og keyra þetta áfram, byrja aftur með systkinaforgang. Ég ber í sjálfu sér alveg virðingu fyrir því sjónarmiði.
Ég ætla að vera alveg hreinskilin með það að ég er ekki lögfræðilega sammála niðurstöðu borgarlögmanns frá 2008. Mér finnst hún ekki sannfærandi. Mér finnst hún aðeins fela í sér brot af skyldubundnu mati stjórnvalda, svo ég drekki nú þingsal í smá lögfræði. Mér finnst hún ekki í samræmi við jafnræðisregluna. Ég er alveg læs á það hvað eru sannfærandi rök fyrir því hvenær brotið er á jafnræðisreglu stjórnsýslulaganna og hvenær ekki. Ég tek því undir þessi sjónarmið frá hægri vængnum, ég geri það, en vitið til; við höfum ekki tíma til að berjast fyrir dómstólum eða á skrifstofum sérfræðinga stjórnsýslunnar yfir einhverju sem við getum bara hreinlega lagað með þessu frumvarpi á skömmum tíma, búið til fyrirsjáanlega og mjög skýra reglu sem leysir þennan hnút.
Talandi um hnúta sem við þurfum að leysa þá veit ég alveg að þetta frumvarp er ekki að fara að leysa stóra vandann í leikskólamálum Íslands. Ég veit að stóri vandinn okkar sem við þurfum að leysa verður að eiga sér stað þverpólitískt. Við erum í rauninni að sjá kerfið okkar hrynja mjög hægt og rólega fyrir framan okkur, kerfi sem var einu sinni algjört flaggskip, fyrirmynd og forsenda þess árangurs sem við höfum náð í jafnréttismálum. Ég hef haft áhyggjur af þessari þróun mála alveg síðan löngu áður en ég eignaðist börn og varð mamma. Ég er 41 árs í dag og ég eignaðist eldra barnið mitt þegar ég var 29 ára. Ég á ekki lengur barn á leikskólaaldri en ég ætla aldrei nokkurn tíma að hætta að hafa áhuga á leikskólanum. Ég ætla að standa með honum. Ég ætla að standa með fólkinu sem þarf á honum að halda og notar þjónustuna og menntunina sem hann býður upp á, standa með börnunum sem eru á honum og eiga sér griðastað á honum. Ég ætla að standa með fólkinu sem vinnur á þessum vinnustað og hlusta á það hvað það hefur að segja um sínar vinnuaðstæður og það hvers vegna okkur hefur ekki tekist að búa til þannig kerfi að þau geti reitt sig á styttingu vinnuvikunnar með sama hætti og margar stéttir í þessu þjóðfélagi.
Það er svo margt sem við þurfum að ræða í tengslum við leikskólamál í þessum sal, ekki bara handan við lækinn í Ráðhúsinu. Við þurfum að koma á algjöru átaki í stefnumótun í leikskólamálum. Það er bara ekki tími í dag til að rista dýpra til að taka á vandanum. Ég ætla heldur ekki að halda því fram að þetta frumvarp, sem er mjög þjónustumiðað, komi að nokkru einasta leyti til móts við fólkið sem er á gólfinu. Því miður held ég að það hafi orðið svolítið undir í þessari umræðu sem við eigum í núna í tengslum við leikskólamál — hvaða þjónustu við viljum bjóða og hvernig þjónustu og á hvaða forsendum hún á að vera.
Ég er sannfærð um að þetta ágæta frumvarp sem lagt er hér fram í fimmta sinn, og hefur verið bætt úr með áhrifamati sem unnið hefur verið í samstarfi við Félag leikskólakennara, feli í sér talsverða einföldun, einkum fyrir fólk sem býr í Reykjavíkurborg. Ég held að það feli líka í sér skýrari heimildir fyrir önnur sveitarfélög af stærri gerðinni. Slíkar áætlanir eru úrræði sem ég veit að vilji er fyrir hendi af hálfu kjörinna fulltrúa að gera að fyrirmynd.
Bara örstutt um áhrifamatið: Mér finnst rétt að greina frá því að við fengum til okkar fulltrúa frá Félagi leikskólakennara sem átti með mér mjög gefandi og gott samtal. Það er auðvitað þannig að þegar menn breyta lögum sem þessum er tekist á um blæbrigði sem passa þarf upp á.
Núna reiði ég mig á að þetta mál fái öfluga þinglega meðferð. Við fengum, held ég, eina eða tvær umsagnir á síðasta löggjafarþingi frá Samtökum verslunar og þjónustu sem voru jákvæð í garð frumvarpsins. Ég held þó að ég muni hvetja sem flesta hagaðila sem sinna réttindum barna að veita umsagnir og benda á það sem huga þarf að, sérstaklega við samþykkt þessa frumvarps ef af því verður og hvernig við búum til lögskýringargögn sem munu koma því skýrt á framfæri til hvers er ætlast með þessu frumvarpi.
Að sama skapi vil ég þakka mennta- og barnamálaráðuneytinu fyrir það að hafa komið mér til aðstoðar við flutning þessa tiltekna mats. Mögulega þurfum við ögn að árétta að þetta fari í málsmeðferð fyrir hv. allsherjar- og menntamálanefnd, sem ég tel líklegt að fái málið í fangið.
Nú vil ég þó setja punktinn í þessa 1. umræðu. Ég held að við ættum fyrst og fremst að beina sjónum okkar að þjónustunni og þeirri ætlun frumvarpsins sem felur í sér að eyða lagaóvissu. Ég vil meina að við núverandi aðstæður sé sú lagaóvissa búin til af kerfinu. Kerfið hefur bitið í skottið á sér hvað þetta varðar. Við sem sitjum hér í sætum löggjafans erum í aðstöðu til að laga þetta. Ég er mjög móttækileg fyrir því ef einhver telur að það sé of mikil áhætta að eldri börn kunni að klemmast á milli. Með frumvarpinu verður okkur í sameiningu fært að koma á einhvers konar viðmiði, hvernig sem það kann að útfærast.
Að lokum vil ég nefna að börn með fötlun eða sérþarfir geta lent þarna á milli. Þau myndu njóta óbreytts forgangs með sama hætti og þau hafa notið en þetta ber að athuga. Stóra verkefni okkar á næstu árum verður að gera íslenska leikskólakerfið aftur að því flaggskipi jafnréttis sem það var hér áður. Kerfið var innleitt af Kvennalistanum í tíð í R-listans og fékk ríkulegan stuðning af hægri vængnum, frá Sjálfstæðismönnum. Þeir vissu nákvæmlega hvað verðið var í þeim efnum og hér ætla ég að taka þann bolta. Þetta er bara kerfisvilla sem ég, sem kona, kann að laga. Ég vona að þið nennið að fara í það með mér.