157. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2025.

leikskólar.

45. mál
[18:30]
Horfa

Flm. (Dagbjört Hákonardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur kærlega fyrir að taka til máls í þessari umræðu. Ég gleymdi að segja eitt í sambandi við lögbindinguna. Ég er þeirrar skoðunar að það þoli ekki margra ára bið að lögbinda leikskólastigið. Við sem ríkisstjórn erum auðvitað komin í það umhverfi núna á okkar öðru starfsári sem var ekki einu sinni fullt starfsár í fyrra, þið vitið hvað ég á við. Það er auðvitað á brattann að sækja með að gera stórhuga áætlanir á þeirri útfærslu, bara svo það sé sagt, því við þurfum þverpólitíska sátt um leikskólann áður en hún getur orðið að raunveruleika. Hana vantar okkur og ég sé ekki alveg fyrir mér að hún getur náðst í bráð. En ég ætla að gera mitt besta til þess og ég ætla að leggja mig virkilega mikið fram við að mæta fólki bara í augnhæð sem er ósammála mér í pólitík, hvort sem það er hér inni eða utan þessa salar, með að það þurfi að tala út frá svo mörgum hagsmunum.

Á forsendum hverra á leikskólinn að vera? Við erum öll sammála um að hann á að vera á forsendum barnsins fyrst og fremst. Við viljum þetta fyrir börnin en við vitum alveg líka af hverju leikskólinn var búinn til eða hvers vegna honum var komið á fót á Íslandi upphaflega. Honum var komið á fót vegna þess að það voru konur þarna úti sem áttu ekki mann og þurftu að vinna fyrir sér. Svo gerðist það að það voru einhverjar konur í námi og það var einhver samfélagslegur ávinningur af því að þær fengju að vera með barnið sitt kannski einhvers staðar í þrjá tíma á dag. Svo liðu árin og allt í einu vorum við komin með geggjað kerfi sem 99% notenda voru ánægðir með og það var bara gott að vinna á leikskóla; þú fékkst heitan mat og gast borðað með börnunum og svo bara gerðist eitthvað, svo bara gerðist eitthvað virkilega slæmt. Þessir vinnustaðir eru ekki samkeppnishæfir lengur. Þannig að já, ég tek hjartanlega undir með hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur og mér er hlýtt í hjartanu við að heyra að við eigum ekki að henda okkur í skotgrafir í leikskólanum, hann er bara allt of merkilegur og góður. Hann á bara svo miklu betra skilið.

Eitt líka með fjármálaráðstefnu. Það er eitthvað sérstaklega kómískt við að það sé bara talað um mann í hliðarsölum og það segir meira en orð fá lýst um það hvar raunverulega forgangsröðunin liggur þegar stóra heildarmyndin er teiknuð. En við skulum ekkert fara að kvarta yfir því, við skulum bara einbeita okkur að einu skrefi í einu. Látum ekki kerfin og eitthvert fólk sem hefur ekki lýðræðislegt umboð — með fullri virðingu fyrir embættismönnum þessa lands, ég kem þaðan, þar er minn bakgrunnur og ég er stolt af honum. En það erum við sem ráðum því hvernig þetta á að útfærast í reynd. Ef við sjáum einhverja hnúta þá er það á okkar ábyrgð og við berum pólitíska ábyrgð á því að leysa á. Það skulum við bara gera hérna saman.

Ég þakka fyrir góða ræðu hjá hv. þingmanni og ég vona svo innilega að málið fái sína meðferð fyrir hv. allsherjar- og menntamálanefnd.