aðgerðir stjórnvalda varðandi verðbólgu og vexti.
Virðulegi forseti. Seðlabanki Íslands ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,5%, aðra ákvörðunina í röð. Skilaboðin eru skýr: Ekki verður slakað á fyrr en verðbólgan færist nær verðbólgumarkmiði. Slíkar aðstæður skapast hins vegar ekki af sjálfu sér heldur kalla á samstillt átak aðila vinnumarkaðarins, hins opinbera og Seðlabankans.
Virðulegi forseti. Launahækkanir hafa verið umtalsverðar síðustu misseri og launaskrið sömuleiðis umfram það sem ætla má að hagkerfið geti staðið undir til lengri tíma. Það er óraunhæft að miklar launahækkanir skili sér bæði í auknum kaupmætti og lágum vöxtum nema eitthvað annað komi til. Einn armur hagstjórnar af þremur hefur þannig ekki róið í takt við peningastefnuna. Á sama tíma er útlit fyrir að tekjur ríkisins verði rúmlega 80 milljörðum umfram áætlun á þessu ári en samt er gert ráð fyrir halla á rekstri ríkissjóðs. Þá boðar ríkisstjórnin hlutlaust aðhaldsstig á næsta ári.
Frú forseti. Innantóm orð sigrast ekki á verðbólgunni. Seðlabankinn stendur sem næst einn í baráttunni þrátt fyrir yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um annað. Hvað varð um að gera meira hraðar? Rétt er að spyrja hæstv. ráðherra að því hvort hann telji fjárlagafrumvarp fyrir árið 2026 raunverulega til þess fallið að ná markmiðum um lægri vexti og aukinn stöðugleika. Ef svo er, hvers vegna endurspeglast það þá ekki í ákvörðunum peningastefnunefndar? Hvað telur ráðherrann að ríkið geti gert betur og hraðar til að liðka fyrir vaxtalækkun?