157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

aðgerðir stjórnvalda varðandi verðbólgu og vexti.

[10:33]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir alveg ljómandi góða spurningu og ágæta greiningu. Það er rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns að það sem drífur áfram þróunina um þessar mundir er launaskrið, þá sérstaklega launaskrið á almennum markaði. Hvað ríkið getur gert til að stemma stigu við því er dálítið erfið spurning. Eftirspurn hefur verið sterk og það er ekki óeðlilegt, fjárhagur bæði heimila og fyrirtækja er mjög sterkur. Það eru í sjálfu sér ekki óskaplega mörg tæki sem ríkið getur beitt en hv. þingmaður bendir þó á hversu mikilvægt það er að ríkið sýni aðhald, að ríkið stuðli að því að það sé jafnvægi í fjármálum hins opinbera. Auðvitað hefði verið óskandi að fjárlög þessa árs hefðu verið hallalaus en ég vil þó halda til haga að strax og þessi ríkisstjórn tók við var fjármálaáætlun endurskoðuð. Hún var samþykkt á síðasta þingi og gerði ráð fyrir miklu minni halla en gert hafði verið ráð fyrir áður. Hann hefur minnkað enn frekar eftir það og fjárlögin eru með minni halla en fjármálaáætlun gerði ráð fyrir.

Síðan stendur til að ríkisstjórnin kynni aðgerðir í húsnæðismálum en húsnæðisliðurinn hefur keyrt áfram verðbólguþróun. Þeir sem hafa þó glöggt fylgst með og lesið í orð Seðlabankans í gær taka kannski eftir því að þar hefur þó verið þróun í átt til meira jafnvægis og tónn bankans hefur batnað mikið. Þetta er þó áfram ástand sem ég er mjög vakandi yfir og við þurfum að fylgjast vel með.