aðgerðir stjórnvalda varðandi verðbólgu og vexti.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir mjög góða spurningu. Það er auðvitað mjög mikilvægt að ríkisfjármálin styðji við peningastefnu Seðlabankans. En það er fleira sem þarf til. Það hefur verið umtalsverð umræða í þessum þingsal í gegnum tíðina um fyrirbæri sem Ísland kom sér upp við önnur skilyrði þar sem stöðugleiki í verðlagi var miklum mun minni en hann hefur verið á undanförnum árum og það er hin svokallaða verðtrygging. Það er ljóst og hefur ítrekað komið fram í því sem Seðlabankinn hefur tjáð sig um aðgerðir sínar til að viðhalda stöðugleika í verðlagi, að verðtryggingin tefur mjög það sem kallað er miðlunarferli peningastefnunnar. Ríkisstjórnin er ákaflega meðvituð um þetta og það er forgangsmál að gera breytingar á þessu fyrirkomulagi þannig að Seðlabankinn þurfi ekki að grípa til eins stórra skrefa og hann hefur orðið að gera hér samanborið við nágrannalöndin. (Forseti hringir.) Þar er stærsta hindrunin útbreidd notkun verðtryggingar.