álögur á ferðaþjónustuna.
Frú forseti. Eins og komið var inn á í síðustu ræðu í síðustu fyrirspurn þá eru horfur í efnahagsmálum um margt verri heldur en þessi ríkisstjórn hafði vonast til og gert ráð fyrir og lofað. Hæstv. ráðherra sagði einhvern tímann að ef aðstæður þróuðust með óæskilegum hætti yrði brugðist við því og gerðar breytingar í samræmi við það. Ég spyr hæstv. ráðherra: Með hvaða hætti verður brugðist við? Þá er ég ekki hvað síst að spyrja um áform ríkisstjórnarinnar um skattahækkanir því það stendur til að hækka skatta og gjöld á almenning og fyrirtæki, ólíkt því sem hæstv. ráðherra fullyrti þegar hann kynnti fjárlagafrumvarp með hækkunum á sköttum á fyrirtæki og almenning.
Ég spyr einkum, til að reyna að afmarka þetta, um stöðu ferðaþjónustunnar nú því að hún er lent í töluverðri vörn; vörn á mörkuðum, vörn vegna hás raungengis íslensku krónunnar og hás verðlags hér, vörn vegna hárra gjalda og svo bætist það við að annað af tveimur millilandaflugfélögum Íslands, Play, fór í þrot. Hyggst hæstv. ráðherra engu að síður halda áfram með áform sín um að hækka verulega skatta og álögur á ferðaþjónustuna með gríðarlegri hækkun vörugjalda á bifreiðar til að mynda sem kemur mjög illa við bílaleigurnar, sem hindrar þá dreifingu ferðamanna um landið sem er auðvitað afskaplega mikilvægt að halda uppi, og með nýjum náttúru- og ferðamannagjöldum sem áformuð eru og öðrum þeim álögum sem boðaðar hafa verið og bitna alveg sérstaklega illa á ferðaþjónustunni sem nú er lent í mun erfiðari stöðu heldur en leit út fyrir ekki alls fyrir löngu? Hyggst ráðherrann í engu taka tillit til þessara breytinga og breyttra aðstæðna og milda höggið gagnvart ferðaþjónustunni?