álögur á ferðaþjónustuna.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans fyrstu spurningu til mín og er bæði ljúft og skylt að svara. Nú kom það glögglega fram í máli hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur að þegar kemur að því að beita ríkisfjármálunum til að styðja vegferð Seðlabankans eru þar tvær leiðir mögulegar. Við erum sem sagt að reyna að draga úr þenslu. Hvernig getum við gert það? Annars vegar getum við farið í aðhalds- og niðurskurðaraðgerðir. Það hefur þessi ríkisstjórn gert. Hins vegar getum við farið þá leið að hækka skatta. Hvernig raunverulega dregur Seðlabankinn úr eftirspurn? Hann dregur úr eftirspurn með því að hækka vexti, sem gerir það að verkum að það er dýrara að taka lán og hagkvæmara að spara, einmitt til þess að draga úr eftirspurn. Áhrif vaxtahækkana eru þess vegna mjög svipuð áhrifum skattahækkana. Við þurfum bara að vera að tala um sama hlutinn. Ef við erum þeirrar skoðunar að ríkið eigi að beita sér með harðari hætti eru þessar tvær leiðir mögulegar.
Varðandi ferðaþjónustuna sérstaklega þá tek ég undir að það eru óveðursský í kringum hana. Ríkisstjórnin hefur verið að vinna að tillögum, í sátt og samtali við ferðaþjónustuna, um breytingu á gjaldtöku af ferðamönnum. Í þeirri vinnu er tekið tillit til hvernig þessi staða hefur þróast og við munum að sjálfsögðu taka tillit til hennar eins og hún þróast áfram.