157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

álögur á ferðaþjónustuna.

[10:42]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Þetta er alltaf sami söngurinn. Við erum að fylgjast með þessu og við munum taka tillit til hlutanna þegar þeir koma í ljós. Þeir eru að koma í ljós og ég er að spyrja um viðbrögð, ekki það hvort hæstv. ráðherra sé að fylgjast með. En það væri áhugavert ef hæstv. ráðherra, í ljósi orða sinna hér áðan, myndi útskýra fyrir okkur hvort hann telji að þegar skattar eru hækkaðir á vörur og þjónustu þá hækki eða lækki verðið á þeim vörum og þeirri þjónustu. Hvort hækkar verðið eða lækkar ef skattar eru hækkaðir á vörur og þjónustu?

Loks spyr ég hæstv. ráðherra hvort til standi af hálfu ríkisstjórnarinnar að reyna að beita sér fyrir því að Ísland komist a.m.k. að einhverju leyti út úr þeim ógöngum sem við erum lent í með auknum kolefnissköttum Evrópusambandsins á samgöngur við landið, flug og siglingar, nokkuð sem við áttum aldrei að dragast eins langt inn í og við höfum gert. Mun ríkisstjórnin í ljósi reynslunnar af þessu leitast við að vinna þetta að einhverju leyti til baka eða helst auðvitað öllu leyti?