álögur á ferðaþjónustuna.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir kannski þá auðveldustu spurningu sem ég hef fengið: Skattahækkanir leiða til hækkunar á vörum og þjónustu á nákvæmlega sama hátt og vaxtahækkanir leiða til hækkana á vöru og þjónustu.
Varðandi kolefnisgjöldin þá er það auðvitað þannig að Ísland sem þátttakandi í alþjóðlegum kerfum kemur til þess að gera vel út. Við verðum að átta okkur á því að þegar þessi gjöld eru lögð á og við veljum að taka þátt í kerfunum, þá erum við að spila inn í þann styrkleika íslensks atvinnulífs að kolefnislosun hér er lítil. Þegar kolefnisgjöld eru lögð almennt á t.d. orkuframleiðslu í heiminum, þá þýðir það að samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja gagnvart samkeppnisaðilum erlendis batnar en versnar ekki. Við þurfum þess vegna að skoða þessa hagsmuni í heild sinni. Þeir sem þekkja vel til íslenska orkukerfisins vita að við eigum töluvert mikið inni og að hluti af því samkeppnisforskoti sem við höfum og ástæðan fyrir því að við erum enn þá að draga að okkur iðnað, að röðin af aðilum sem vilja koma til Íslands og hefja hér atvinnustarfsemi er löng, er einmitt sú að við höfum þarna forskot.