157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

óverðtryggð húsnæðislán.

[10:45]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Það er ljóst að sleggjan sem hæstv. forsætisráðherra kynnti í aðdraganda kosninga er ekki að virka á verðbólguna og vextina. Seðlabankinn lækkar ekki stýrivexti. Ég held að allir á Íslandi og við í Framsókn og ég hlýt að halda að ríkisstjórnin hafi líka áhyggjur af þessari þróun, hafi áhyggjur af því sem ég heyrði nú meira að segja seðlabankastjóra hafa áhyggjur af, unga fólkinu, fyrstu kaupendum sem eiga mjög erfitt með að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Ég held að það sé mikilvægt að Seðlabankinn taki til skoðunar þau íþyngjandi skilyrði sem voru sett sérstaklega á þann hóp. Við í Framsókn myndum alla vega hvetja til þess.

Í fyrra andsvari áðan tók hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra undir að verðtryggingin væri sérstakt vandamál og verðtrygging húsnæðislána og hefði þar af leiðandi áhrif á að peningastefnan næði ekki fram sínu eins hratt og vel og það þyrfti stærri skref hjá Seðlabankanum. Við í Framsókn höfum leitast eftir öll þessi ár að draga úr vægi verðtryggingarinnar með það að markmiði að hún hverfi úr íslensku samfélagi. Ég mælti fyrir einni leið til þess fyrir tveimur dögum með þingsályktunartillögu sem var áskorun til ríkisstjórnarinnar og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um að taka til skoðunar skýrslu sem ég lét vinna og var fyrsta skrefið í því að finna út úr því hvernig við hér á Íslandi, eins og í öllum öðrum löndum í kringum okkur, getum tekið óverðtryggð löng lán með föstum vöxtum og þannig tekið gríðarlega stór skref til að draga úr vægi verðtryggingar. Ég lagði þetta mál líka fram í fyrra. Það var lítið um svör frá fjármálaráðherranum. Staðreyndin er hins vegar sú að einn flokkur í ríkisstjórninni lagði fram slíkar hugmyndir í sinni kosningabaráttu, um að skoða fyrirkomulagið í Danmörku. Ég veit að verkalýðsforkólfar í Samfylkingunni og þeir sem eru úti í samfélaginu (Forseti hringir.) í dag hafa kallað eftir því. Tökum á verðtryggingunni. Hér er verkefni sem mig langar til að heyra hvað hæstv. fjármálaráðherra (Forseti hringir.) og ríkisstjórnin ætlar að gera við. Þetta mál fór alla vega í gegnum fyrri umræðu hér fyrir tveim dögum.