157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

óverðtryggð húsnæðislán.

[10:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir svarið. Nú var ég kennari um alllangt skeið og varð nú fljótlega þess áskynja að nemendur skildu ekki alltaf það sem ég sagði, sennilega vegna þess að ég er ekki nógu skýr í tali og ég hef greinilega ekki verið það áðan vegna þess að það er alls ekki verið að hafna því að það þurfi að endurskoða hér rammann. Þvert á móti tók ég fram sérstaklega, bæði í svari mínu til hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur og til hv. þm. Sigurðar Inga Jóhannssonar, að t.d. vægi verðtryggingarinnar þyrfti að endurskoða og það væri ástæða til þess að endurskoða fyrirkomulagið.

Það sem ég er að hafna er einfaldlega sú hugmynd sem var í þessari skýrslu. Hugmyndirnar þarna úti eru fjölmargar. Við þurfum að vega og meta hverja og eina. Það er markmið ríkisstjórnarinnar og verður kynnt þegar húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar verður kynntur hvaða hugmyndir við teljum að séu leiðin áfram. Ég er einfaldlega að segja við ykkur: Fyrirkomulagið þarf að vera þannig að það sé sjálfbært, það sé fjárhagslega sjálfbært til lengri tíma, að við lendum ekki öðru ÍL-sjóðsmáli. Það eru þeir hagsmunir sem ég þarf að gæta og mun gæta.