157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

sala Íslandspósts.

[10:52]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Gaman að því að leyfa hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að skína hér í dag og ætla ég því að spyrja hann áfram. Allt of lengi hefur það tíðkast að hið opinbera geri sig gildandi á samkeppnismarkaði, hvort sem það er á bankamarkaði, fjölmiðlamarkaði eða póstmarkaði. Viðreisn segist, á tyllidögum í það minnsta, vilja frjálsan og opinn markað og að samkeppnishindrunum sé rutt úr vegi í innlendum sem alþjóðlegum samkeppnisgreinum. Því finnst mér tilefni til þess að kanna afstöðu hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra til sölu á Íslandspósti.

Á síðustu árum hefur Íslandspóstur þróast í að vera flutningafyrirtæki. Á þeim markaði starfar fjöldi einkafyrirtækja. Upp úr þessu hafa sprottið ýmsar kærur um undirverðlagningu og kvartanir yfir því hvernig ríkisfyrirtækið Pósturinn hagar sér á þessum markaði. Þrátt fyrir það að eitt sinn kunni að hafa verið fyrir því rök að ríkið sinni póstþjónustu hér á landi er ljóst að slík rök eru ekki fyrir hendi í dag samhliða fjölgun fyrirtæki á þessum markaði og þeim tækniframförum sem hafa átt sér stað. Ríkisstjórn sem leitar leiða til hagræðingar í rekstri hlýtur að horfa til þess sem eðlilegt er að selja Íslandspóst og tryggja alþjónustu í útboði. Því spyr ég hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort hann telji tilefni til að selja Íslandspóst og hvort að það að ríkið reki flutningafyrirtæki samræmist stefnu Viðreisnar.