sala Íslandspósts.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir alveg ljómandi góða spurningu og tel nú eiginlega víst að við séum meira sammála en ekki, eins og svo sem um margt annað sem hér er rætt. Almennt er það viðhorf Viðreisnar, og ég hygg nú Sjálfstæðisflokksins líka, að ríkið ætti ekki að hafa afskipti af öðrum mörkuðum en þar sem markaðsbrestir krefjast þess að ríkið hafi afskipti. Hvað erum við að tala um þegar við tölum um markaðsbresti? Jú, það eru fyrirbæri eins og náttúrleg einokunarfyrirtæki sem er ekkert óeðlilegt að ríkið eigi. Hvað er náttúrulegt einokunarfyrirtæki? Það er fyrirtæki eins og Landsnet.
Varðandi Íslandspóst er það í sjálfu sér rétt sem hv. þingmaður nefnir að þetta fyrirbæri sem lykilinnviður hefur raunverulega misst mjög mikið af fyrri stöðu. Ég myndi ekki ganga svo langt að segja að hún væri horfin en hún hefur tvímælalaust minnkað og ég er sammála hv. þingmanni um að það er full ástæða til að taka umræðu um hvort ástæða er til þess að ríkið sé á þessum markaði. Við verðum samt að bera virðingu fyrir því að Ísland er stórt og strjálbýlt land. Þar veitir Pósturinn þjónustu sem aðrir myndu ekki veita, en a.m.k. tel ég eðlilegt að það sé umræða um það hvort þetta eigi að vera varanlegt fyrirkomulag og við þá hvaða þröskulda eða skilyrði við myndum líta svo á að hagsmunir ríkisins af því að tryggja þessa þjónustu um allt land séu orðnir það litlir að ekki sé ástæða til þess að eiga þetta fyrirtæki.