sala Íslandspósts.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið sem ég heyri að hefur þjálfast mjög í því að vera pólitíkus og segja: Jú, í grunninn er ég sammála hv. þingmanni en það er mjög margt í mörgu og við getum skoðað þetta og rætt á næstu árum.
Eins og ég sagði áðan, virðulegur forseti, þá hefur rekstur Íslandspósts breyst í það að vera flutningsfyrirtæki. Við vitum að það er fjöldi flutningsfyrirtækja sem sinnir þessari þjónustu um land allt. En það er alveg hárrétt hjá hæstv. ráðherra, það er ekki alls staðar. Það er algerlega nauðsynlegt að tryggja það að landsbyggðin öll búi við slíka örugga þjónustu og það er hægt að gera með útboði, enda er það skrifað inn í lögin að það er hægt að gera slíka markaðskönnun og kanna slíkt. Ég vænti þess auðvitað að hæstv. ráðherra og í það minnsta þingmenn Viðreisnar séu tilbúnir að styðja þau þingmál sem ég hef lagt hér fram, annars vegar um að hæstv. innviðaráðherra láti gera slíka markaðskönnun og hins vegar að fela hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að hreinlega hefja sölu Póstsins. Ég hygg að litlaus fjármálaráðherra með litlaus fjárlög (Forseti hringir.) vilji gjarnan bæta við eins og nokkrum milljörðum í góð innviðaverkefni þar sem hægt er að breyta flutningsfyrirtækinu Póstinum í til að mynda vegi og göng eða eitthvað slíkt.