157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

sala Íslandspósts.

[10:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir síðari töluna. Það voru raunverulega engar spurningar þannig að ég er þá frjáls að því að segja það sem mig langar til hér. (Gripið fram í.) Ég lít ekki á það sem móðgun heldur frekar hól að hv. þingmaður telji að ég sé að lagast sem stjórnmálamaður [Hlátur í þingsal.] en vil samt segja að maður lærir alltaf á lífsleiðinni og það sem ég hef lært á þessum tíma sem ég hef eytt með ykkur, kæru þingmenn, er hversu mikilvægt er einmitt að hlusta á ólík sjónarmið og maður á þá að fara varlega í afdráttarlausa afstöðu því að þarna úti eru margar skynsamlegar skoðanir. Ég vona að þið getið tekið undir að ég hef lagt mig fram um að hlusta á ykkar sjónarmið og vega og meta hvort mér finnist þau skynsamleg.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hæstv. ráðherra á að ávallt ber að ávarpa forseta.)

Ég bið forseta innilegrar afsökunar.