157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.

136. mál
[11:11]
Horfa

Flm. (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana. Það er vissulega verulegt ánægjuefni að hafa orðið vitni að gjörbreyttri afstöðu til að mynda Samfylkingarinnar þegar kemur að virkjunum og því hvernig við göngum fram í þeim málum. Á undanförnum árum hefur staðan í þinginu þegar kemur að þessum mikilvæga málaflokki verið erfið. Það lýsir sér í því aðgerðaleysi sem hefur einkennt málaflokkinn á undanförnum allt of mörgum árum. Í dag horfumst við í augu við það að það er orðið alvarlegt ástand þegar kemur að raforkuframleiðslu og er þá ekki verið að tala endilega um öll þau tækifæri sem hafa farið forgörðum. Það er auðvitað rannsóknarefni út af fyrir sig. Menn eru oft að velta því upp í þessum þingsal að það sé ástæða til að setja rannsóknarnefndir í hitt og þetta þegar kemur að hinum ýmsu málum, eins og hvort það hefði mátt fá milljarði meira eða minna fyrir einhverja bankasölu á sínum tíma, og það væri kannski full ástæða til að setja utanaðkomandi hlutlausa rannsóknarnefnd saman um það hver kostnaður samfélagsins er af þessu sinnuleysi þingsins og þeim ágreiningi sem hefur verið um þessi mál og hvað það kostar samfélagið í dag. Ábyrgðin er okkar.

Fyrir um átta til tíu árum þegar ég var formaður atvinnuveganefndar var ramminn til afgreiðslu og ég og við komum fram með breytingartillögur sem hefðu einmitt markað stefnu til ákveðins tíma þar sem vatnsaflskostir, fimm upp í sjö vatnsaflskostir, voru settir í nýtingarflokk og hefðu gjörbreytt málinu. Þá féllu þau ummæli m.a. úr ranni stjórnarandstöðunnar á þeim tíma sem barðist mjög hart gegn þessu og taldi reyndar að þetta væru algerar ófarir sem við værum að boða, töluðu um rof á sátt um rammaáætlun af því að við værum að gera breytingartillögur frá niðurstöðu verkefnisstjórnar. En breytingin núna hjá Samfylkingunni er sú að nú boðar hæstv. ráðherra breytingar á niðurstöðum verkefnisstjórnar áður en málið kemur til þingsins. En þá féllu þau orð: Láttu ekki svona Jón, við eigum nóg af raforku. Þarna var undir stór verksmiðja sem til stóð að reisa með mjög umhverfisvænum iðnaði á Grundartanga en í hana fékkst ekki rafmagn, það voru erlendir fjárfestar sem ætluðu að koma að því.

Síðustu ár höfum við upplifað náttúruhamfarir í fjölbreyttari og meiri mæli en við höfum gert um langt skeið, áratugi má segja. Þetta hefur verið vaxandi ógn á undanförnum árum í íslensku samfélagi og þá fara menn betur að gera sér grein fyrir því hversu takmörkuð við erum í dreifingu orkuöflunar um landið. Við erum með allt of stóran hluta af orkuöflun landsins á tiltölulega takmörkuðu svæði á Suður- og Suðvesturlandi. Það eru til sviðsmyndir sem sýna fram á það að staðan til að mynda í vatnsaflsvirkjunum á Þjórsár-/Tungnaársvæðinu geti orðið mjög alvarleg ef það kemur til ákveðinna náttúruhamfara í Vatnajökli eða landi tengt honum. Rammaáætlun tekur ekki til þessara þátta. Hún tekur ekki til þeirrar ógnar á þjóðaröryggi sem í þessu felst og ég held að það sé reyndar nauðsynlegt að boða að gera þær breytingar á rammanum sem þarf að gera. Ég fagna því að hæstv. ráðherra boðar breytingar á lögum um rammaáætlun. Það er mjög mikilvægt að það verði farið í það sem fyrst en það mun taka okkur tíma. Það mun taka okkur tíma að ná um það einhverri víðtækri sátt, talandi út frá bara þeim staðreyndum sem liggja á borðinu þegar farið er að ræða um þennan mikilvæga málaflokk. En það er mjög mikilvægt einmitt að þessar breytingar taki til þessara sjónarmiða um þjóðaröryggi sem tæki þá til einkunnagjafar virkjunarkosta út frá því hvar þeir væru staðsettir á landinu og gæti breytt forsendum og myndu alveg örugglega breyta forsendum í uppröðun. Það er því nauðsynlegt að til að mynda nýr faghópur, sem fjalli sérstaklega um þetta atriði, verði settur á laggirnar í breytingum á þessum lögum.

Það þarf líka að vinda ofan af þessari breytingu, það er allt of mikil vinna sem fer í rammaáætlun. Ég get fullyrt það við ykkur, hafandi setið hér á þingi og tekið þátt í því í nefndarstörfum að afgreiða málið til þingsins, þ.e. lögin um rammaáætlun, að ekkert okkar sem var í þeirri vinnu gerði sér grein fyrir því að rammaáætlun yrði með þeim hætti sem hún hefur þróast. Það er til að mynda sérstaklega tekið tillit til þess í greinargerð, ef ég man rétt, frekar en í lögunum sjálfum, að það eigi ekki að fara of djúpt í greiningar á hverjum virkjunarkosti fyrir sig, það eigi að greina þetta út frá umhverfismati áætlana en ekki umhverfismati framkvæmda. Þróunin hefur aftur á móti verið sú að það er verið að kafa mjög djúpt ofan í allar forsendur sem eru í raun og veru þær forsendur sem teknar verða til umfjöllunar þegar umhverfismat framkvæmda fer fram, ef menn hafa komist svo langt. En það er einhver hræðsla við það, ef ramminn afgreiðir virkjunarkost í nýtingarflokk, að þar með sé búið að stimpla hann sem kost sem verður farið í sama hvaða sjónarmið koma upp. En þannig var heldur ekki hugsunin á sínum tíma. Það var einmitt hugsunin að þetta væri bara fyrsta skrefið og svo tæki við umhverfismat framkvæmda og síðan öll þau leyfi sem þarf að afla. Þarna verðum við því að auka skilvirkni og ná meiri hraða á vinnu okkar þannig að fyrirsjáanleikinn verði meiri.

Miðað við málflutning hæstv. ráðherra og reyndar fleiri ráðherra í ríkisstjórninni, m.a. hæstv. forsætisráðherra og þingmanna í meiri hlutanum, þá held ég að þingið geti verið í einstöku færi sem ekki hefur verið uppi í mjög langan tíma. Það voru m.a. þingmenn úr meiri hlutanum sem lýstu áhuga á því að vera meðflutningsmenn á þessu máli ef þeir fengju leyfi. Það fór ekkert lengra en það. En við höfum mikið tækifæri til að eyða þeirri óvissu sem hefur verið viðvarandi í allt of langan tíma og ramma inn örugg skref í öruggri uppbyggingu á vatnsafli sem er auðvitað grunnurinn í okkar raforkuframleiðslu og er mesti fyrirsjáanleikinn í. Það er hægt að byggja þær virkjanir nákvæmlega út frá þeim forsendum sem þær munu skila af afli eða jarðvarmavirkjunum sem krefjast meiri aðlögunar að náttúrunni og því hvað vatnshitageymirinn gefur þannig að það er hægari uppbygging. En þarna getum við stigið örugg skref til að eyða óvissu og byggt upp fyrirsjáanleika til næstu ára þar sem stigin verða þessi skref. Það gefur okkur líka svigrúm til þess að takast á um það hvernig við eigum að haga þessum málum inn í framtíðina og við þurfum á þeim tíma að halda samkvæmt reynslunni. Það er ekki svo sem eingöngu þetta þjóðaröryggi sem liggur undir þó að það sé gríðarlega mikilvægt og við verðum að horfast í augu við þær sviðsmyndir sem hafa verið dregnar upp einmitt af náttúruhamförum á Vatnajökulssvæðinu, hvaða áhrif það getur haft mögulega ef afleiðingar þess myndu birtast á vatnasvæði Tungnaár-/Þjórsársvæðisins. Það er bara gríðarlega mikið högg og við verðum auðvitað að hafa það í huga og axla þá ábyrgð sem er að bregðast við því í tíma en ekki þegar út í ógöngur mögulega yrði komið.

Það er ekki bara þetta þjóðaröryggi sem liggur undir, það eru líka tækifærin sem liggja við fætur okkar. Þannig hefur það verið hér lengi að það er biðröð erlendra fyrirtækja með mjög fjölbreytt tækifæri til að byggja upp hér verðmæti og atvinnusköpun, við getum sagt langmest fyrirtæki sem byggja á einhverjum umhverfisvænum atvinnutækifærum og verðmætasköpun, erlendir og innlendir aðilar. Þeir aðilar hafa ekki getað fengið neinn fyrirsjáanleika, ekki getað fengið nein svör frá orkufyrirtækjunum okkar. Þetta hefur hamlað alveg gríðarlega allri eðlilegri uppbyggingu. Það er engin þjóð sem á eins mikil tækifæri og Ísland þegar kemur að þessum málum. Við eigum svo mikil tækifæri í því að nýta frekar orkuauðlindir landsins án þess að ganga freklega á náttúruna sem heild og ég held að ég geti fullyrt að það er engin þjóð sem á önnur eins tækifæri. Þessi verðmætasköpun og þessi fyrirsjáanleiki í orkumálum og stórstígum skrefum, til að mynda í fiskeldi og slíku — það var nú mikil fiskeldisráðstefna í kjördæmaviku og það var svo sem skiljanlegt að þingmenn ættu ekki heimangengt, margir verandi á ferð og flugi um sín kjördæmi en ég eyddi tveimur dögum á fiskeldisráðstefnunni og það er auðvitað bara stórkostlegt að fylgjast með til að mynda tækninýjungunum þar. En einmitt með því að að ramma þetta inn þannig að fyrirsjáanleikinn verði mikill, opna fyrir leiðirnar fyrir fyrirtæki til að fjárfesta, þá getum við bara á næstu árum gjörbreytt öllum forsendum til að takast á við krefjandi verkefni í uppbyggingu innviða, í heilbrigðis- og menntakerfi o.s.frv. Það er þetta sem okkur vantar og það er þetta sem við eigum að vera að horfa til vegna þess að það er auðvitað grunnurinn að því að geta byggt hér upp öflugt og sterkt samfélag, að halda áfram á þeirri braut sem var vörðuð hér fyrir áratugum síðan og hefur tekist svo vel og fleytt okkur þangað sem við erum komin. Það skal ekki gert lítið úr því. En síðustu árin má segja, svona frá því sem við köllum hrunárin, þá hefur þetta verið í allt of miklum ágreiningi og enginn stórkostlegur framgangur í sjálfu sér orðið. Allt miklu hægar en hefði þurft að vera.

Allir þeir virkjunarkostir sem við leggjum til hér í þessu frumvarpi til laga ættu að vera þannig að þeir eiga ekki að kalla á djúpstæðan ágreining. Það er mikill stuðningur við þessa virkjunarkosti, víðtækur stuðningur á heimasvæðum, fullyrði ég. Þau svæði sem taka til þessara virkjunarþátta hafa mikinn stuðning meðal sveitarstjórna og íbúa á þessum svæðum. Þetta er engin heilög upptalning hér. Það má vel vera að það séu aðrir jafn góðir eða jafnvel betri kostir í einhverjum tilfellum til að koma inn í þessa púllíu, en það er einmitt eitthvað sem nefndin ætti að gefa sér tíma til að fara yfir. Þessu er líka dreift á milli orkufyrirtækja, þessu er dreift um landið einmitt út frá þjóðaröryggi, út frá dreifingu orkuframleiðslunnar og er dreift á milli orkufyrirtækjanna þannig að það sé ekki bara eitthvert eitt fyrirtæki sem þarf að fara í framkvæmdir á mörgum stöðum heldur koma margir aðilar að máli.

Mín skoðun hefur alltaf verið sú að byggðastefna á að vera grunnstef hjá okkur í uppbyggingu atvinnu- og verðmætasköpunar. Við eigum að búa til hvata fyrir fyrirtæki til að fjárfesta alveg sérstaklega á köldum svæðum í atvinnulegu tilliti. Við erum með nokkur svona svæði á landinu og auðvitað gefur þetta okkur mikið tækifæri til að styðja við þær brothættu byggðir í samvinnu við þá sem hingað vilja koma til að nýta þessa orku. Við myndum auðvitað gefa þennan fyrirsjáanleika sem myndi ýta í burtu þessum kalda vegg sem við erum búin að keyra á í orkumálum. Þetta myndi strax fara að hafa áhrif. Menn myndu strax, vegna þess að þó að þetta taki langan tíma í uppbyggingu, svona virkjanir eru engin hilluvara, þá hefst strax undirbúningur, það getur fljótlega hafist jarðvinna og annar undirbúningur og svo framkvæmdir við þessi mannvirki. Á sama tíma eru menn þá að fara að selja þessa orku þannig að atvinnufyrirtækin sem ætla að nýta þetta geti komið og farið að byggja sig upp. Þannig myndum við ýta úr vegi þessum vegg sem veldur ákveðinni stöðnun í fjárfestingum þegar kemur að þeim atvinnugeirum sem nýta græna orku í landinu.

Við ræðum hér um ýmsa möguleika í þessu. Hæstv. ráðherra, eins og ég nefndi áðan, er búinn að boða það að í breytingartillögu við rammaáætlun sem hann er að fara að leggja fyrir þingið að hann ætli að breyta niðurstöðu verkefnisstjórnar þegar kemur að ákveðnum virkjunarkostum. Það er verið að fara að setja allt of mikið af virkjunarkostum í bið. Áfram sama sagan, þó við séum vissulega að sjá svona viðleitni til að fjölga í nýtingarflokki, þá erum við ekki að horfa til þess sem hér er verið að horfa til, að fara víðar um landið og dreifa þessari framleiðslu og uppbyggingu sem víðast um landið. Við ræðum líka um vindorku og aðrar lausnir og við munum takast á um þetta á næstu vikum, mánuðum og árum, hvert við eigum að stefna og hvernig við ætlum að breyta umgjörðinni utan um þessi mál. Ég held að það sé mjög mikilvægt að stíga þessi skref, það duga engar smáskammtalækningar í þessu. Ef við ætlum að vera stöðugt í einhverjum hænuskrefum í þessu þá ryðjum við þessu ekki úr vegi eins skýrt og þarf að vera.

Virðulegur forseti. Ég hef rakið hér helstu forsendurnar fyrir því að við leggjum fram þetta mál. Ég ítreka það sem ég hef sagt hér áður. Ég fagna mjög þeim umskiptum sem hafa orðið í pólitískri umræðu meðal þingmanna og ráðherra þegar kemur að þessum mikilvæga málaflokki. Ég held að þingið sé í einstöku tækifæri til þess að ná nú saman um stærri og öruggari skref, ryðja svolítið brautina í því að menn geti farið að gera alvöruáætlanir og hugsa stærra. Öll fjárfesting okkar í innviðum, til að mynda sem mikið er rætt um hvað við erum mikið eftir á, allar forsendur fyrir þeirri uppbyggingu og fjárfestingu mun gjörbreytast við slíka uppbyggingu víða um land. Ég vonast til þess að við getum náð einhverri samstöðu um að stíga þessi öruggu skref í vetur og boða nýja sýn í þessum málum.