flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spyr hvort mögulega séu einhver hliðarskref í þessu og hægt að ná fram breytingum í núverandi kerfi með því að bæta inn í lögin þessum mikilvæga þætti sem snýr að þjóðaröryggi og dreifingu orkuframleiðslunnar um landið. Ég held bara að það taki allt of langan tíma í ljósi reynslunnar. Ég held að staðan sé bara sú, þrátt fyrir góðan vilja hæstv. ráðherra og einhverra í ríkisstjórnarflokkunum, að þá greinir maður samt ákveðinn ágreining innan ákveðinna flokka þar um hvernig þessi mál eiga að þróast, enda væri það mjög sérstakt ef sá flokkur sem barðist nú hvað hatrammast gegn þessu, Samfylkingin, á undanförnum árum væri farin að stíga hér allt í einu samstiga inn í gjörbreytt umhverfi. Það auðvitað tekur tíma. Ég held að það sé mjög mikilvægt við þessar aðstæður núna og þann ríka meiri hluta sem virðist vera í þinginu að við samþykkjum að stíga mjög ákveðin skref. Enginn af þessum virkjunarkostum getur talist vera einhver risa virkjunarkostur en þeir skipta allir miklu máli. Þeir skipta miklu máli fyrir þau svæði sem virkjanir verða byggðar á. Þeir skipta miklu máli fyrir orkufyrirtækin sem að þeim standa, að fá betri og sterkari rekstrargrundvöll. Þetta skiptir síðan gríðarlegu máli upp á orkuöryggi og uppbyggingu atvinnu- og verðmætasköpunar og fyrirsjáanleika í því. Þetta eitt og sér að mínu mati dugar ekki, virðulegur forseti, til að brúa, getum við sagt, þá þörf. Ég held að við þurfum auðvitað að horfa einnig til þeirra framkvæmda sem fyrirhugaðar eru og eru í gangi. Við horfum líka til framkvæmda sem eru mögulega að fara af stað í jarðvarma og við erum að horfa á vindorkuna sem ákveðinn kost. Vindorkan verður þeim mun hagkvæmari eftir því sem á líður, þegar vatnsaflskostirnir verða fleiri þá eykst hagkvæmni þeirra virkjana mjög mikið.