157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.

136. mál
[11:35]
Horfa

Flm. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er hárrétt sem hv. þingmaður nefnir að það eru skref í pípunum og það er ágætt en þau eru í stóra samhenginu ekki stór skref, Hvammsvirkjun er um 100 MW virkjun og síðan eru minni virkjunarkostir hér og þar. Þetta er bara rétt upp í nös á ketti, ef það má orða það þannig, miðað við þá stöðu sem er í þessum málum í dag og þá erum við ekkert að tala um að geta svarað einhverjum nýjum alvörutækifærum í uppbyggingu atvinnulífs og í verðmætasköpun og horft til byggðasjónarmiða. Hugmyndin með þessu frumvarpi er að styrkja grunnstoðirnar sem við byggjum ofan á. Það er auðvitað alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að það þarf að taka tillit til efnahagsástandsins. Ég held að það sé nú í dag sá slaki í þessu kerfi að við getum alveg tekist á við fleiri verkefni, bæði í uppbyggingu innviða og eins í uppbyggingu svona stórra framkvæmda. Þá á ég við vegakerfið og slíkt. Það þarf að taka tillit til þess en ég held að það eigi ekki að vera stóri þátturinn. Þetta eru líka framkvæmdir sem munu dreifast út um allt land.

Auðvitað þurfum við að tryggja öryggi almennings og verðið líka og (Forseti hringir.) það gerum við bara með því að sjá til þess að hér verði ásættanlegt framboð.