flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir þetta ágæta yfirlit yfir frumvarpið sem ég er að mörgu leyti efnislega sammála, hvað varðar að setja kraft einmitt í þær virkjanir sem eru nefndar. Þá vil ég fyrst nefna Hamarsvirkjun, í a-lið, og Skatastaðavirkjun í Skagafirði og Hvalárvirkjun. Síðan eru tvær aðrar virkjanir fyrir vestan, í d- og e-lið; Hvanneyrardalsvirkjun og Skúfnavatnavirkjun, eitthvað sem ég veit lítið um. Þarna vantar mögulega einn virkjunarkost í viðbót sem er þá Vatnsfjörðurinn. Við höfum dæmi um það að virkjanir fari bara vel saman við þjóðgarða og friðlýst svæði. Við þekkjum það í Þingvallavatni, það var að vísu ósætti fyrir norðan, við Mývatn, en ég held að menn séu orðnir sáttari nú.
En hvað sem því líður þá er ég að velta fyrir mér tilganginum með þessu frumvarpi. Er þetta pólitísk yfirlýsing eða er þetta raunverulegt frumvarp til að ná þessum málum fram? Ég velti því fyrir mér þegar ég fer yfir þetta mál og framsetningu þess: Hefði ekki verið nær að vinna að því að breyta lögum og reglum um rammaáætlun og fá inn þessa þætti með sterkari hætti þannig að þessar virkjanir, sem eru margar hverjar sjálfsagðar og eðlilegar, komi fram og tryggður framgangur þeirra innan þess ferlis í staðinn fyrir að búa til einhverja hliðarpípu í virkjanaleyfum? Það væri gott að fá það fram hér hjá flutningsmönnum þessa frumvarps.