flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.
Virðulegur forseti. Það er hárrétt sem hv. þingmaður nefnir þegar hann nefnir Vatnsfjörð sem dæmi um mjög álitlegan virkjunarkost þar sem gæti farið saman vernd umhverfisins og virkjun. Einmitt á þeim stað er hægt að byggja, ef ég man rétt, svona 25 MW virkjun, sem myndi auðvitað gjörbreyta stöðunni fyrir vestan. Þar er hún byggð inn í fjallinu að öllu leyti, hún hefur engin áhrif á þetta svæði sem er verndað. Hún hefur ekki áhrif á vatnsbúskap eða annað á þessu svæði og er að öllu leyti gríðarlega hagkvæm. Hæstv. ráðherra hefur ekki boðað það að aflétta friðlýsingunni eða breyta friðlýsingarskilmálunum þannig að Vatnsfjörðurinn geti orðið að veruleika en það er full ástæða til að skoða það að mínu mati.
Er þetta pólitísk yfirlýsing, er þetta bara einhver pólitískur gambítur? Nei, þetta er auðvitað í senn yfirlýsing og það er full alvara með þessu frumvarpi. Ég segi það alveg af einlægni að ég fagna því mjög hvernig umræðan er núna á þessu þingi miðað við það sem hún hefur verið undanfarin mörg ár. Þetta hefur verið algjört stríðsástand. Ég lagði fram svona frumvörp 2009–2013 í tíð vinstri stjórnarinnar þá. Við lögðum til að það yrði farið á fullt í þessar framkvæmdir. Það var ekki hlustað á það en það er tækifæri núna pólitískt til að stíga þessi skref. Þannig er bara þingið samsett. Við skuldum einhver 20 ár í þessari uppbyggingu innviða. Það verður auðvitað svolítið á vettvangi hv. formanns atvinnuveganefndar, Sigurjóns Þórðarsonar. Ég verð bara að nefna það sem mér láðist að nefna áðan, virðulegur forseti, að ég vil vísa málinu til atvinnuveganefndar til málsmeðferðar. Ég vona að við getum unnið þar að þessum málum, getum fengið einhverja gesti til að fara yfir helstu sjónarmiðin í þessu og sjá hvort við getum náð samstöðu um að vinna þetta áfram.