flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.
Frú forseti. Það verður ánægjulegt að fara yfir þetta mál og fara í gegnum það og ég held að það séu ýmsir fletir á þessu. Við erum að fara í gegnum orkuskipti vonandi í meira mæli og notum innlenda orkugjafa í meira mæli í stað innfluttra hvað sem síðar verður, hvort við förum í olíuvinnslu og getum boðið upp á innlenda olíu, ég held að það sé kannski ekki raunhæft næstu árin. En þetta er að mörgu leyti ágæt umræða. Sá sem hér talar er almennt miklu jákvæðari í garð vatnsaflsvirkjana en að fara í vindorkuver út um hvippinn og hvappinn. Þau geta átt sinn stað í tengslum við vatnsaflsvirkjanir, en að fara í eitthvert kapphlaup með vindorku — ég tel vindorkuver vera meira lýti á umhverfinu (Forseti hringir.) heldur en vatnsaflsvirkjanir sem falla vel inn í umhverfið og geta bara verið prýði.