157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.

136. mál
[11:42]
Horfa

Flm. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þegar við vorum að vinna rammaáætlun á sínum tíma, fyrir tíu eða tólf árum, lögin, þá kom vindorkan ekki til umræðu. Hún var svo óhagkvæm að það þurfti ekki einu sinni að ávarpa það í lagasetningu. Það var talað um jarðvarma og vatnsorku og aðra virkjunarkosti. Þar voru menn m.a. kannski helst að horfa til sjávarfallavirkjana. Svo hefur bara tæknin breyst, umhverfið hefur breyst og þetta er orðið miklu afkastameira og betra í dag en verður fyrst alvöruhagkvæmt í samspili við vatnsaflsvirkjanir vegna þess að þú getur þá geymt vatnið í lónunum meðan vindurinn blæs. Við búum svo vel að búa í 104.000 km² landi þar sem er bara fullt af mjög álitlegum svæðum til þess að byggja upp vindorku samhliða vatnsaflinu þar sem þetta er ekki fyrir neinum. Við þurfum nefnilega ekki og eigum ekki að fara inn á þessi viðkvæmu svæði þar sem þetta er fyrir augum manna alla daga. (Forseti hringir.) Við eigum bara fullt af svæðum þar sem við getum byggt þetta og það kemur enginn þangað nema skepnurnar og smalarnir á haustin.