157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.

136. mál
[11:44]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir góða ræðu og góða yfirferð um stöðu orkumála hér á Íslandi. Ég, kannski líkt og hv. þingmaður, græt þessi ár sem hafa farið svolítið í súginn þar sem við höfum ekki náð að þoka hlutunum nægilega vel áfram. Þá horfi ég sérstaklega til kjördæmisins þar sem mínir heimahagar liggja, Norðvesturkjördæmis. Þar búum við auðvitað enn þá við mjög óviðunandi stöðu þegar kemur að orkumálum. Ég hef átt mörg samtöl við einstaklinga sem hafa hug á uppbyggingu hvers konar en það sem stendur tækifærunum helst fyrir þrifum á þessu svæði eru orkan og samgöngurnar. Þessir innviðir eru hreinlega bara á þeim stað að þau tækifæri sem annars gætu orðið að veruleika verða það ekki fyrr en þetta verður komið í lag, sérstaklega þegar kemur að fyrirsjáanleika og að ákveða að byggja upp atvinnustarfsemi á þessum svæðum. Auðvitað þarftu að hafa fyrirsjáanleika þegar kemur að þessum innviðum. En ég vil þakka fyrir þessa umræðu hér. Þetta er um margt áhugavert þingmál og ég sé nú að flestar virkjanirnar hér eru einmitt í Norðvesturkjördæmi.

Ég er sammála sjónarmiðum sem komið hafa fram um vatnsaflsvirkjanir almennt og ég held að það að flýta þessum framkvæmdum skipti miklu máli, með einföldun regluverks o.s.frv. Hv. þm. Halla Hrund Logadóttir stal eiginlega spurningunni minni sem var um það hvort við ættum ekki frekar að reyna að finna þessu einhvern veginn stað inni í rammanum, sem ég býst við að sé að koma hér til umræðu í þinginu. En mig langar þá frekar að spyrja aðeins út í, af því að hér hefur verið farið yfir söguna, við vitum hvað gerðist 2017–2024 og hvers vegna ekkert þokaðist áfram þá, en fyrir okkur sem erum ný á þingi: Hvernig var staðan hérna 2013–2016 í ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks? Hvað var það sem kom í veg fyrir að málum yrði þokað áfram þá? Þá lít ég sérstaklega á Hvalárvirkjun (Forseti hringir.) og þessa virkjunarkosti sem nefndir hafa verið.