157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.

136. mál
[11:47]
Horfa

Flm. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, Norðvesturkjördæmi er einmitt alveg dæmigert fyrir þetta. Þar vantar þetta. Það sem fylgir reyndar oft orkuuppbyggingu, uppbyggingu orkumannvirkja, eru betri samgöngur; það koma brýr og það kemur hitt og þetta sem þarf til þess að flytja þá þungavöru sem þarf að komast á þessa staði. Þetta fer ágætlega saman og ég tek bara undir það með hv. þingmanni. Það er auðvitað alveg eins breytingin sem er að verða fyrir vestan í laxeldinu. Ég held að það þyrfti raunverulega að endurfara svolítið með þessa ráðstefnu sem var hér í síðustu viku fyrir þingheim. Það var alveg ótrúlega fróðlegt að fylgjast með öllum þeim nýjungum sem eru að koma fram í laxeldinu sem svara í raun og veru þeim gagnrýnisröddum sem eru greinilega uppi, hvort sem það kemur að einhverjum tilbúnum hugmyndum um mengun eða sleppingar o.s.frv. Því er bara verið að svara í tækninni. Þetta þarf eiginlega að vera opin löggjöf sem er endurskoðuð á sex mánaða fresti þegar þetta gerist svo hratt, sem betur fer.

Það sem gerðist 2013–2016 var í mjög stuttu máli það, það er lítill tími hérna, að þar kom inn rammaáætlun eftir ákveðna flýtimeðferð. Það var tillaga mín og fleiri í atvinnuveganefnd að við myndum setja þarna fyrst sjö kosti, síðan var farið með það niður í fimm kosti, í nýtingarflokk og það gekk mjög brösuglega. Það fór allt á hliðina í þinginu. Þið þekkið það nú bara frá síðasta vori hvað öflug stjórnarandstaða getur haft að segja. Þegar það eru síðan veikleikar samhliða því innan ríkisstjórnar þannig að stjórnarandstaðan er í raun að spila með hluta af ríkisstjórninni, ríkisstjórnarflokkunum, þá verður það bara mjög flókið að koma svona stórum málum í gegn. Það er það sem gerðist. Ég held reyndar að ef mönnum hefði enst lífið í þessari ríkisstjórn út kjörtímabilið þá hefði þetta nú að klárast á síðasta vetrinum. En það er auðvitað þessi ákveðni pólitíski óstöðugleiki sem myndaðist sem hefur líka haft mikil áhrif inn í það (Forseti hringir.) að þetta hefur ekki tekist á undanförnum árum.