157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.

136. mál
[11:49]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið, heiðarlegt svar. Ég var einmitt mjög sorgmædd yfir því að ná ekki að fara á Lagarlíf, ráðstefnuna sem hér um ræðir, vegna þess að við vorum önnum kafin, þingmenn kjördæmisins, að hitta sveitarstjórnir á sama tíma og því miður getur maður ekki verið á tveimur stöðum í einu. En ég hef fengið ágæta munnlega skýrslu frá einstaklingum sem voru viðstaddir sem töluðu einmitt um að þetta hefði verið algjörlega frábær ráðstefna og mikilvæg til þess að undirbyggja þessa mikilvægu atvinnugrein sem lagareldið er.

Ég er svo sem ekki endilega með spurningu hér í síðara andsvari en mig langaði til að minnast á það að samhliða vatnsaflskostunum þá erum við að sjá jákvæð teikn þegar kemur að jarðhitaleit á þessum svæðum sem ég held geti líka skipt miklu máli. Mig langar bara að nýta síðustu sekúndurnar mínar hér til að hvetja okkur öll, þingmenn, til að vera með augun á þessum bolta, að láta ekki annað kjörtímabil líða þar sem íbúar þessara svæða bíða eftir uppbyggingu, vegna þess að þörfin er sannarlega til staðar.