157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.

136. mál
[12:02]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. ræðumanni fyrir yfirferðina. Mér finnst hins vegar mjög mikilvægt að við tölum út frá staðreyndum, ég er ekki að segja að hv. þingmaður hafi ekki gert það, hann talaði út frá staðreyndum, en það er mikilvægt að við tölum út frá staðreyndum, því sem hefur gerst. Á síðasta kjörtímabili var fyrsta málið sem undirritaður flutti ramminn og við kláruðum það. Hv. þingmaður var eini þingmaðurinn sem greiddi atkvæði með því úr stjórnarandstöðunni, sá eini. (Gripið fram í.) Ég er bara að hrósa hv. þingmanni. Það er staðan sem er uppi. Svo koma þessir ríkisstjórnarflokkar núna og segja: Við viljum gera miklu meira. Við kláruðum strax rammann og einföldunarfrumvarpið, sem er væntanlega mesta einföldunarfrumvarp sem hefur verið flutt varðandi stækkun virkjana og það frumvarp er ástæðan fyrir því að hér hafa virkjanir verið stækkaðar og fleiri mál um sameiningu stofnana. Við skildum eftir þrjá ramma fyrir nýja ríkisstjórn til að keyra inn. Það hefur ekki enn þá einn verið kláraður, ekki einn verið kláraður. Við skuldum 15–20 ár í raforku- og hitaveituvæðingu og þó svo að mikið hafi verið gert á skömmum tíma þá tekur tíma að fara í virkjanir og klára þær. Ég er ekki að skamma hv. þingmann því að hann var alveg með línu þegar kom að virkjanamálum. Ég hef áhyggjur af því að þó svo að flest af því sem hefur verið sagt af ríkisstjórninni í orkumálunum sé rétt þá höfum við ekki enn þá séð neitt. Síðasta vor og í sumar hefur forgangurinn verið skattahækkanir. Þau hefðu getað klárað rammann en gerðu það ekki. Reyndar er ágreiningurinn svo mikill, virðulegur forseti, í stjórnarmeirihlutanum að þau tóku rammann sem ráðherrann kom með og meiri hluti nefndarinnar, stjórnarflokkarnir, tók hagkvæmasta virkjunarkostinn út í breytingartillögu. Nú kemur ráðherrann (Forseti hringir.) og tefur ferlið um marga mánuði með því að ætla að breyta honum af því að hann treystir ekki þingmeirihlutanum. (Forseti hringir.) Þannig að ég ætla ekkert að skamma hv. þingmann, mjög langur vegur frá. Ég er kominn til að hrósa honum sérstaklega fyrir að vera eini stjórnarandstöðuþingmaðurinn á síðasta kjörtímabili (Forseti hringir.) sem greiddi atkvæði með því að það væri farið í orkuöflun. — Ég fer í annað á eftir, virðulegi forseti.

(Forseti (BHar): Forseti gæti aftur á móti skammað hv. þingmenn fyrir að fara yfir tímamörkin.)