flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir andsvarið og þetta er auðvitað kúnstugt, ég var hreinlega búinn að gleyma þessu. Allir viðstaddir þingmenn Miðflokksins greiddu atkvæði með rammanum við lokaatkvæðagreiðsluna. (Gripið fram í.) En ég var búinn að gleyma því hreinlega að enginn þingmanna Samfylkingarinnar, enginn þingmanna Viðreisnar, enginn þingmanna Flokks fólksins og enginn þingmanna Pírata hefði greitt atkvæði með málinu. En það er auðvitað bara satt og rétt að halda því til haga. En það kannski undirbyggir enn frekar þennan mikla umsnúning sem hefur orðið í stöðu orkumálaráðherra hvað það varðar að koma málum áfram og þess vegna er svo sérstakt að við séum hér komin inn í annan þingvetur af fjórum þessa kjörtímabils og enn sé allt á núlli. Ég held að það sé ekki búið að mæla fyrir neinum ramma það sem af er þingi, ég taldi mig muna það rétt, og enginn fór í gegn síðast. Virðulegur forseti og ríkisstjórn voru í fullum færum til að setja þau mál á dagskrá hvenær sem var á því þingi, enda stóð það lengi og nægur tími og mig minnir að 14 mál hafi verið kláruð á meðan umræða um veiðigjöld átti sér stað í þingsal þannig að nægt var svigrúmið.
Síðan er það auðvitað þannig að ef þetta er meiningarlaust hjal um áhuga á frekari orkuöflun þá er fyrsti tíminn bestur til að það komi fram. Það skiptir máli fyrir okkur í þinginu, okkur í stjórnarandstöðunni sem erum að reyna að styðja við ráðherrann, að það komi fram ef það er í raun bara verið að draga menn áfram á asnaeyrunum, það sé engin raunveruleg meining á bak við þennan meinta vilja. Það á í öllu falli eftir að sýna fram á að það sé festa í honum.