157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.

136. mál
[12:09]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hann spyr hvað sé til ráða varðandi það að hvetja fyrirtækin til að virkja þegar ramminn hefur verið afgreiddur. Ég held að þarna gæti að hluta til gagnast pólitísk forysta. Ég hef haft efasemdir og talað um það margoft að það sé ekki skynsamlega haldið á eigendastefnu hins opinbera, m.a. gagnvart bönkum, orkufyrirtækjum og fleiru. Það er ein megineigendastefna sem teppaleggur yfir allt sem er raunverulega óttaleg froða, sá texti sem þar er. Ég held að það væri framarlega í röðinni að yfirfara það og setja einhvern pólitískan brodd í.

En svo er annað sem ég kannski gleymdi að koma inn á í fyrra svari mínu. Hv. þingmaður nefndi prýðisgott mál sem hann sem þáverandi hæstv. orkumálaráðherra mælti fyrir og fékk samþykkt, sem var stækkunarfrumvarpið. Þetta er kannski af sama meiði og það sem ég kom inn á í ræðu minni. Það getur ekki verið að þeir sem samþykktu regluverkið á sínum tíma hafi haft það í huga að ekki mætti stækka virkjanir með því að setja nýja túrbínu í án þess að neitt annað breyttist. Það bara getur ekki hafa verið hugsunin. Svona öngstrætum höfum við lent í út um allt, fullkomin þvæla og galskapur og hreinlega ótrúlegt að það þurfi að leggja fram sérstakt frumvarp til að leyfa þetta. Maður hefði talið duga bara einhver almenn skynsemisskoðun á málið, menn myndu segja: Auðvitað skiptum við um túrbínur eða bætum við eftir atvikum í þessari fyrirstöðu í ljósi þess að ekkert annað breytist. En þetta er kerfið, þetta er regluverkið sem við höfum einhvern veginn þvælt okkur í og bundið okkur í allan þennan tíma. Við verðum að losna út úr því.