157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.

136. mál
[12:12]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir hans ágætu yfirferð áðan og þær ræður sem hafa verið fluttar hér á eftir henni. Sá sem hér stendur er einn af meðflutningsmönnum á þessu frumvarpi og það er alveg rétt, eins og hefur komið fram, að það er algerlega breytt pólitískt umhverfi í afstöðu til virkjunarmála, kannski ekki alveg hér í þingsal en heilt yfir, og miklu meiri samstaða um það að hér þarf að gefa í. Fyrir hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson, sem var hæstv. umhverfisráðherra, var þetta bara allt annað umhverfi, bæði innan ríkisstjórnar og í stjórnarandstöðu — en eins og fram hefur komið þá er batnandi fólki best að lifa — þar sem lagst var gegn og reynt að berjast á móti frumvörpum og hugmyndum um frekari virkjanir. En eins og hefur komið fram voru líka tilbúnar í ráðuneytinu reglugerðir til einföldunar og annað sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, þegar hann var ráðherra, var kominn langt með. Umhverfið er allt annað í dag en það var þá.

En hver er í rauninni staðan? Orkuspá Landsnets segir að fyrir 2035 þurfum við 5.000 GWst, bara í rauninni til að halda í horfinu, til að bregðast við fólksfjölgun og eðlilegum vexti. Ekkert extra, ekkert einhver ný stór verkefni heldur bara til að viðhalda og halda í horfinu. Af þeim stærri verkefnum sem eru í gangi í dag eru um 2.110 GWst í farvatninu. Það er stækkun á Sigöldu, það er stækkun á Þeistareykjum, það er Hvammsvirkjun, Vaðölduver, sem einu sinni hét Búrfellslundur, og Blöndulundur. Þetta eru þau verkefni sem eru einhvers staðar í farvegi við sjóndeildarhringinn, rúmlega 2.100 GWst. Þá vantar okkur um 3.000 GWst upp á bara til að ná upp í orkuspá Landsnets fyrir 2035, virðulegur forseti. Í þeim ramma sem var til umræðu í vor voru 3.517 GWst undir. Þar eru virkjanir eins og Skrokkalda, Holtavirkjun, Héraðsvötn, Urriðafoss og Kjalölduveita, samtals 3.517 GWst, en meiri hluti nefndarinnar lagði til að einungis tveir virkjunarkostir, tveir virkjunarkostir af þessum fimm, færu í nýtingarflokk og það eru tveir minnstu kostirnir. Þetta hefur reyndar ekki verið klárað frá Alþingi, virðulegur forseti, og kemur ábyggilega aftur til umræðu nú fljótlega, en það voru bara tveir virkjunarkostir, 760 GWst af 3.517, sem lagt var til að færu í nýtingu.

Mönnum verður tíðrætt um orkuskipti en til þess að fara í full orkuskipti þá þurfum við, til viðbótar við þessar 5.000 GWst, 16.000 GWst. Það kom fram núna að hæstv. menningar-, nýsköpunar- og iðnaðarráðherra lagði til í sumar í fjarveru orkumálaráðherra að Hamarsvirkjun, sem er einmitt hér á umræddu frumvarpi, færi í biðflokk. Þetta er 60–70 MW virkjun, um 3–400 GWst, og það er lagt til að þessi virkjun fari í biðflokk þegar öll sveitarfélög á Austurlandi hafa ályktað með virkjuninni. Sveitarfélagið Hornafjörður hefur ályktað með virkjuninni, landeigendur hafa stutt þessa virkjun og Samband sveitarfélaga á Austurlandi og fleiri hagsmunaaðilar á svæðinu hafa allir lagst á eitt með að fara í þennan virkjunarkost og vonandi mun nefndin, í meðförum seinni rammans, breyta Hamarsvirkjun úr bið í nýtingu.

Við tölum mikið um gervigreind. Hér í ræðum er mikið talað um gervigreind og hvernig gervigreindin verður í framtíðinni og annað. En forsendan fyrir því að byggja upp gervigreind á Íslandi er orka. Reiknigeta er gríðarlega orkufrekur iðnaður. Við Íslendingar þurfum að virkja ef við eigum að hafa gagnaver og reiknigetu til að við getum nýtt gervigreindina okkur til framtíðar. Áður en við förum að ræða gervigreind þá skulum við fyrst ræða það hvernig við finnum orkuna í að standa undir reiknigetu gervigreindar. Þetta held ég að sé mikilvægt þegar við erum að ræða t.d. bara um virkjunarmál við ungt fólk þar sem framtíðaratvinnumöguleikar ungs fólks eru ekki síst einhvers staðar á þessu sviði. Það fara að verða til störf sem við vitum ekki hver eru í dag. Það eru til störf í dag sem við sem sitjum í þessum sal höfðum ekki hugmynd um að yrðu til þegar við vorum ungir menn. Hv. þm. Jón Gunnarsson nefndi hér landeldi sem er gríðarlega vaxandi iðnaður. En hvert verkefni í landeldi þarf svona 25–30 MW og ef mér telst rétt til að það séu fjögur, jafnvel fimm, verkefni í gangi núna eru það 100, 120, 150 MW sem þarf í landeldi, virðulegur forseti, bara í landeldisverkefnin sem nú eru fram undan. Því til samanburðar má nefna að Hvammsvirkjun er 95 MW.

Varðandi rammaáætlunina þá er það þannig að verkefnisstjórninni er gert að skoða ákveðna þætti, haka í ákveðin box. Síðan kemur ramminn inn til okkar og þá eigum við að taka hann til umræðu og skoða áhrif annarra þátta því að rammaáætlun og niðurstöður rammaáætlunar eru ekki — kannski hafa margir stjórnmálamenn misskilið það sem svo — endanleg niðurstaða; eru ekki salómonsdómur um það hvort virkjun eigi að fara í nýtingu, bið eða vernd. Það er okkar þingmanna að vega og meta aðra þætti, efnahagslega þætti, orkuöryggislega þætti og fleira, sem geta orðið til þess að virkjun fer úr bið í nýtingu eða úr vernd í nýtingu. Við sem sitjum í umhverfis- og samgöngunefnd, ég og hv. þm. Ólafur Adolfsson, lögðum til að allir fimm virkjunarkostirnir sem ég nefndi áðan, sem voru til umræðu, færu í nýtingu af því að þörfin er svo krefjandi og óþarfi að fara yfir það hér.

Við erum komin á þann stað að það gengur ekki lengur að það taki áratugi að ákveða eina virkjun. Hvammsvirkjun hefur nú verið 25 ár í ferli, en það tók enga stund, þurfti ekkert umhverfismat og ekki neitt, að reisa 11 MW orkustöð í Bolungarvík. Það var olíuketill sem var reistur og byggður þar til að mæta orkuskorti á Vestfjörðum. Það tók enga stund en fyrir vatnsaflsvirkjun, eins grænan orkukost og hann getur orðið, þá erum við búin að vera nánast í eina eða tvær kynslóðir að reyna að koma því í gegn. Það hefði verið betra ef þau frumvörp sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson var með, um einföldun regluverks og annað, hefðu fengið farveg. Ef ekki hefði verið sú andstaða sem verið hefur hér í þinginu undanfarin ár, m.a. hjá núverandi stjórnarflokkum, sérstaklega Viðreisn og Samfylkingu, væri ástandið kannski betra. En eins og ég sagði áðan, virðulegur forseti, batnandi fólki er best að lifa.

Ég velti því líka fyrir mér, eins og staðan er orðin í virkjunarmálum í dag, hvort vatnsaflsvirkjanir eigi í raun að vera undanþegnar Árósasamningnum. Ég velti því alvarlega fyrir mér að við kippum Árósasamningnum úr sambandi þegar við erum að ákveða hér vatnsaflsvirkjanir. Ég held að það sé eitthvað sem við þurfum að hugsa af því að við sjáum hvað það getur tafið virkjunarframkvæmdir um mörg ár þegar kæruferlin byrja og darraðardansinn í kringum úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Þetta er sá vettvangur þar sem allir og amma þeirra geta sent inn kærur og þetta getur tafið þjóðhagslega mikilvæg verkefni um mörg ár.

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er mjög brýnt mál. Þetta er eitt skref í átt að því að auka framtíðarhagsæld og hagvöxt Íslendinga. Það mun bara ráðast af því hvernig mál munu þróast hér næstu árin og áratugina, hvort við nýtum það tækifæri sem nú er á þingi, nýtum það andrúm sem nú er á þingi, til þess að stíga enn fastar til jarðar í þessu máli.