flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana. Ég er einn þeirra tíu þingmanna sem eru á þessu ágæta og góða máli. Á því eru þingmenn frá Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum og Miðflokknum. Málið gengur út á að Umhverfis- og orkustofnun skuli veita virkjunarleyfi fyrir eftirfarandi vatnsaflsvirkjanir og samkvæmt því verður heimilt að reisa og reka vatnsaflsvirkjanir með allt að 95 MW afli og virkja til þess orku. Þeir virkjunarkostir sem heimilt er að nýta eru Hamarsvirkjun á Austurlandi, Skatastaðavirkjun í Skagafirði, Hvalárvirkjun á Ströndum og svo fyrir vestan eru Hvanneyrardalsvirkjun og Skúfnavatnavirkjun.
Það hefur skort á umræðu hér í þingsal um þjóðaröryggisþáttinn í raforkuframleiðslu á Íslandi. Ég mun kannski koma aðeins inn á það í ræðunni. Þessi skilningur hefur þó aðeins verið að vakna en það hefur klárlega skort á þennan þjóðaröryggisvinkil og líka í tengslum við vinnu við rammaáætlun síðan það ferli var tekið upp. Sá sem hér stendur telur að það ætti að vera mjög stór þáttur í mati á virkjunum á Íslandi, þ.e. þjóðaröryggisþátturinn. Að framkvæmdir við virkjanir fari fram á öruggum svæðum þegar litið er til náttúruvár. Holuhraunsgosið 2014–2015 vakti upp miklar spurningar í sambandi við orkuöryggi þjóðarinnar. Þá kom aðeins umræða og á köflum jafnvel töluvert mikil umræða um að það væri mikið og stórt gos í Bárðarbungukerfinu. Þetta eldgos kom upp í Holuhrauni og var í eldstöðvakerfi sem kennt er við Bárðarbungu og Veiðivötn. Það er eitt stærsta eldstöðvakerfi landsins, um 190 km langt og 25 km breitt þar sem það er breiðast. Kerfið er að hluta undir norðvestanverðum Vatnajökli og tvær stórar megineldstöðvar tilheyra því. Þær kallast Bárðarbunga og Hamarinn og eru báðar undir Vatnajökli. Vitað er um 27 eldgos í Bárðarbungukerfinu á sögulegum tíma. Það er talið vera fjórða virkasta eldstöðvakerfi landsins. Aðeins Grímsvötn, Katla og Hekla eru stærri.
Eitt lengsta hraun í veröldinni eftir ísöld á uppruna sinn í Bárðarbungukerfinu, svonefnt Þjórsárhraun, sem rann 130 km leið til sjávar fyrir um 8.600 árum. Í tengslum við Holuhraunsgosið, sem er þá hluti af Bárðarbungukerfinu, sem kom raunverulega upp 50 km frá Bárðarbungu norðan við Vatnajökul, kom stórt flóð niður Jökulsá á Fjöllum. Það seinkaði raunverulega framkvæmdum við nýja brú á þjóðveginum yfir Jökulsá á Fjöllum. Það er búið að endurhanna þá brú og vonandi kemst hún inn í samgönguáætlun, sem er boðuð núna í haust, sem allra fyrst. Brúin er megintenging á milli Norður- og Austurlands og mikilvægt samgöngumannvirki. Það var einmitt farið í endurskoðun á þeirri brú út af þessu Holuhraunsgosi vegna þess að það er þekkt á sögulegum tíma að flóðin sem verða þegar gýs undir Vatnajökli sjálfum fara í þrjá farvegi. Vatnsflóðin fara niður Jökulsá á Fjöllum, Skjálfandafljót og síðan er það náttúrlega Þjórsár-/Tungnaársvæðið. Við erum með um helming af orkuframleiðslu Landsvirkjunar á Þjórsár-/Tungnaársvæðinu. Ef við horfum t.d. á hvernig orkukerfi okkar er byggt upp, ef við tökum Sogið með Þjórsár-/Tungnaársvæðinu þá er um helmingur af framleiðslu Landsvirkjunar á því svæði. Hinn helmingurinn er frá Blönduvirkjun og austur í Fljótsdalsvirkjun. Það skiptist nánast alveg í tvennt.
Það er mikilvægt að dreifa virkjunum vel um landið einmitt út frá þeim hagsmunum sem snúa að orkuöryggi sem þjóðaröryggismáli og að þær séu byggðar á svæðum sem verða ekki fyrir áhrifum eða þar sem þekkt náttúruvá getur komið upp. Því er mikilvægur þessi þjóðaröryggisvinkill, eins og kemur fram í því frumvarpi sem hér er rætt. Hann er raunverulega í algjörum forgangi og það er mikilvægt að þannig sé staðið að málum að það sé virkjað á öruggum svæðum.
Eldhræringar á Reykjanesi gefa síðan nýja mynd sem snýr að orkuöryggi þjóðarinnar. Í rammanum hefur verið gert ráð fyrir nokkrum jarðvarmavirkjunum á Reykjanesi. Þær eldhræringar og eldgos sem hafa verið þar — og sérfræðingar á þessu sviði, jarðfræðingar, eldfjallafræðingar og aðrir, segja að það sé hafið nýtt tímabil á Reykjanesi í nokkrum gosreinum sem mun halda áfram næstu áratugi og aldir. Þess vegna er rétt að hafa þetta í huga þegar við erum að ræða öryggismál og orkuöryggi, að það þarf örugglega að skoða vel hversu fýsilegt er að virkja á því svæði meðan þetta er að ganga yfir sem er í gangi núna á Reykjanesi. Nýting orkukosta sem eru til staðar á öruggum svæðum er því mikilvæg og er það tilgangur framlagningar þessa frumvarps sem við ræðum hér um, um flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.
Frú forseti. Mig langar til að vísa í og lesa upp úr greinargerð frumvarpsins:
„Á grundvelli þjóðaröryggis telja flutningsmenn frumvarpsins að flýta þurfi framkvæmd vatnsaflsvirkjana hér á landi til að tryggja raforkuöryggi landsins vegna aukinnar raforkuþarfar. Eins og fram hefur komið að undanförnu getur gos í Vatnajökli (Bárðarbungu) haft alvarlegar afleiðingar í för með sér á Þjórsár-/Tungnaársvæðinu þar sem mesta raforkuframleiðsla landsins fer fram í dag. Að mati flutningsmanna liggur það í augum uppi hversu alvarleg staða getur myndast við þær aðstæður fyrir samfélagið í heild. Það er því mjög mikilvægt að bregðast við með því að virkja utan þess svæðis og tryggja að rafmagn verði áfram tiltækt og vernda þannig landið gegn óvæntum orkuskorti vegna náttúruvár.“
Frú forseti. Enn fremur kemur fram í greinargerð málsins:
„Með aukinni framleiðslu endurnýjanlegrar orku á fleiri stöðum en [á] suður- og suðvesturhorni landsins er stuðlað að áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífs og þróunar og þar með verður frekari trygging fyrir byggð um landið allt. Einnig verður áframhaldandi stöðugleiki og möguleiki á að svara breyttum þörfum íbúa fyrir orku, t.d. vegna tækni, nýsköpunar, stóriðju, rafvæðingar samgangna og fleira. Með frekari vatnsaflsvirkjunum á Íslandi verður nauðsynlegt raforkuöryggi tryggt í ljósi mögulegra náttúruhamfara í náinni framtíð. Það stuðlar að sjálfbærni, samfélagslegum en einnig efnahagslegum stöðugleika en ekki síður raforkuöryggi landsins.“
Það er sá þáttur sem ég held að sé einn sá mikilvægasti á akkúrat þessum tímapunkti, þ.e. að tryggja raforkuöryggi landsins sem þjóðaröryggismál.
Það hefur komið fram í skýrslum sem hafa verið unnar á vegum Samtaka iðnaðarins að fjórðungur útflutningstekna þjóðarinnar byggir á framleiðslu og nýtingu á raforku. Ég hygg að það séu fá lönd sem eru raunverulega jafn háð raforku í tengslum við lífsskilyrði, a.m.k. í hinum vestræna heimi, og Ísland. Við þekkjum það að raforkuframleiðsla á hvern landsmann er hvergi meiri á jarðríki en á Íslandi og hefur haft mikil áhrif á þau kjör sem við búum við. Ef ég man rétt þá eru framleidd 58 MW á hvern Íslending, síðast þegar ég skoðaði þetta fyrir einhverjum misserum síðan — á hvern landsmann á Íslandi. Númer 2 í heiminum er Noregur með 28 MW. Þannig að raforkukerfið okkar er algjört grundvallaratriði og því þurfum við að huga vel að því með öllum hætti.
Hamarsvirkjun fyrir austan er hluti af þessu frumvarpi og er mikilvæg virkjun á Austurlandi. Sú raforkuframleiðsla sem myndi fara þar fram með vatnsafli ásamt öflugu flutningskerfi raforku á því svæði er gríðarlega stórt og mikilvægt mál fyrir Austurland, auðvitað landið allt en hefur sérstaka þýðingu á Austurlandi og er mikilvægt að koma þeirri framkvæmd í gang. Við bíðum eftir uppbyggingu á tengivirki á flutningskerfinu fyrir austan, við Hryggstekk, sem mun hafa mikil áhrif og bæta raforkuöryggi fyrir austan. Báðar þessar framkvæmdir eru gríðarlega mikilvægar fyrir öryggismál og orkuöryggi á svæðinu.
Skatastaðavirkjun hefur þó þann kost, en hún er ein þessara fimm virkjana sem eru á listanum í þessu frumvarpi, að hún er á tiltölulega öruggu svæði út frá náttúruvá, hún er á einu öruggasta svæði landsins gagnvart því og hefur þess vegna mikið vægi. Hún er við byggðalínuhringinn og á miklu svæði, væri þá í grennd við Blönduvirkjun og þá orkuframleiðslu sem er á því svæði og hefur þar með mikið vægi út frá þjóðaröryggisvinklinum. Sá sem hér stendur hefði haft mikinn áhuga á því á sínum tíma þegar öll þessi vinna fór fram í tengslum við rammaáætlun, að þessi þáttur sem snýr að þjóðarörygginu hefði haft meira að segja og þar er raunverulega hlutverk Skatastaðavirkjunar mjög stórt í því að skapa meira orkuöryggi í landinu.
Síðan kannski aðeins að þeirri umræðu sem þetta mál snýst um, sem er þá orkuöryggi þjóðarinnar sem þjóðaröryggismál, en sá sem hér stendur vill meina að aðventustormurinn í desember 2019 og þær slæmu skemmdir sem urðu á byggðalínuhringnum og síðan einnig á svæðisbundna kerfinu á Norðurlandi hafi komið þessari umræðu svolítið af stað. Sú vinna sem var unnin þar í framhaldinu sýnir mikilvægi orkuöryggis út frá þjóðaröryggi. Það er skýrsla sem var unnin í framhaldi af því með 500 hugmyndum, ef ég man rétt, um hvernig mætti styrkja kerfin okkar sem snúa að öryggismálum m.a. og hvet ég alla þingmenn til að kynna sér þá skýrslu.
Síðan verður að segja varðandi þær hörmungar sem ganga yfir í Úkraínu að almenningur hefur, held ég, vitneskju um á hvað er ráðist þar fyrst allra hluta, það er raforkukerfi þjóðarinnar í Úkraínu. Við sjáum hversu mikilvægt orkuöryggi er í hverju samfélagi til að halda því gangandi vegna þess að án raforku fara öll kerfi niður á tiltölulega mjög skömmum tíma, þannig að það hefði líka aukið mikið skilninginn, held ég, á þessum málum sem snúa að raforkuöryggi og hversu mikilvægt raforkuöryggi er í tengslum við þjóðaröryggi.
Við sem sitjum á Alþingi í dag, og sá sem hér stendur hefur oft minnst á það áður, ættum að ræða orkumál þjóðarinnar miklu meira heldur en við gerum og orkuöryggi sem þjóðaröryggi vegna þess að þetta er algjör forsenda fyrir byggð í landinu. Það er ekki oft sem tækifæri gefast til að ræða þennan málaflokk hér í þinginu. Þess vegna fagna ég því að þetta frumvarp hafi komið fram og tek undir þau sjónarmið sem nú eru uppi og hafa komið fram hjá hv. þingmönnum hérna fyrr í dag í þessari umræðu um að það eru mjög góð skilyrði fyrir góðum og miklum stuðningi við þessi mál hér í þinginu sem hafa lent í miklum hremmingum á undanförnum árum hér í þingsal. Það tók níu ár að klára þá rammaáætlun sem var kláruð síðast. Við þurfum að skoða vel þau tækifæri sem eru í þinginu í dag til að takast á við þessi mál.
Með þessu hvatningarorðum, frú forseti, lýk ég máli mínu.