157. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2025.

Menntamál.

[13:18]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Herra forseti. Ég held að við getum öll verið sammála því að menntakerfið sé einn af hornsteinum samfélagsins og lykillinn að farsæld komandi kynslóða, en í dag stöndum við á krossgötum. Samfélagið hefur breyst hraðar en flestir gerðu ráð fyrir og skólarnir hafa ekki náð að aðlagast breyttum veruleika. Við blasir að við þurfum nýja hugsun, nýja nálgun, samstöðu og hugrekki til að ráðast í raunverulegar umbætur. Helstu áskoranir í leik- og grunnskólum í dag eru margar en ég ætla hér að tæpa á nokkrum.

Í fyrsta lagi vekur íslenskukunnátta barna áhyggjur flestra, ef ekki allra. Í öðru lagi er skortur á fagmenntuðum kennurum og margir hafa efasemdir um þróun kennaramenntunar. Í þriðja lagi er skortur á stoðþjónustu, fagfólki og viðeigandi námsefni sem styður við börn með fjölbreyttar þarfir. Þessar áskoranir ráða auðvitað miklu um gæði náms og jöfnuð til framtíðar litið. Sífellt aukinn fjöldi barna í íslenskum leik- og grunnskólum hefur annað móðurmál eða heimamál en íslensku. Þetta er vitanlega merki um breytt samfélag og líka ný tækifæri, en um leið líka áminning um að við verðum að tryggja öllum raunverulegan aðgang að tungumálinu okkar, íslenskunni. Því umfram allt verðum við líka að gera kröfur um árangur í námi. Við verðum að tryggja það að allir sem búa hér læri íslensku því að kunnátta í íslensku er lykillinn að samfélaginu og kunnátta í læsi er lykillinn að því að börnin geti lært.

Jafnframt ber okkur líka skylda að útvega tækifæri og úrræði, tryggja námsefni og viðeigandi stuðning og kennslu í íslensku til þess einmitt að allir geti lært íslensku, jafnvel setja kröfur á það að viss þekking sé til staðar áður en börnin eru sett inn í bekk. Ef börnin skilja ekki kennarann sinn og bekkjarfélaga þá ná þau litlum sem engum árangri. Það skiptir sköpum fyrir árangur í námi að nemandi hafi grunnfærni í íslensku, ekki aðeins fyrir eigin hag heldur líka fyrir bekkjarfélaga og kennara.

Virðulegi forseti. Að kennurum og kennaramenntun: Kennarinn gegnir lykilhlutverki í árangri nemandans og við búum vel að því að eiga gríðarlegan mannauð í kennurum landsins. Samt blasir við grafalvarleg staða. Við heyrum það að um 20% kennara í íslenskum skólum í dag eru ekki fagmenntaðir. Samkvæmt landsskýrslu TALIS segir að stór hluti kennara kenni greinar sem voru ekki hluti af þeirra eigin menntun og að yngri kennarar telji sig verr undirbúna fyrir starfið en áður. Þetta er vissulega áhyggjuefni. Við þurfum að gera kennarastarfið aðlaðandi aftur með betra starfsumhverfi, skýrari starfsþróun og líka raunhæfu svigrúmi til þess að sinna því sem skiptir mestu máli, þ.e. barninu sjálfu. Umfram allt þurfum við líka að tryggja að kennarar njóti sín í starfi og eigi langan og farsælan starfsferil; flosni ekki upp vegna álags eða skorts á stuðningi eða hreinlega of fjölbreyttum og of krefjandi verkefnum sem hefur sífellt fjölgað ár frá ári.

Herra forseti. Við þekkjum líka vel hugtakið skóli án aðgreiningar. Þetta hugtak er á margan hátt kannski ótengt raunveruleikanum. Þetta er mjög falleg hugsun og við viljum öll vinna eftir henni. En er okkur að takast það? Erum við að ná markmiðinu? Erum við með næga sérfræðinga? Erum við með nægt fjármagn til þess að geta raunverulega sinnt skóla án aðgreiningar? Fjöldi barna virðist ekki fá þann stuðning sem þau þurfa og kennarar bera of íþyngjandi ábyrgð og jafnvel sinna verkefnum sem eru ekki í þeirra verkahring. Samkvæmt nýrri skýrslu mennta- og barnamálaráðuneytisins þurfa yfir 120 börn á sérhæfðum úrræðum að halda á hverjum tíma. Mér skilst að um 30% nemenda í grunnskólum í dag séu að fá sérkennslu. Á síðasta ári fékk líka fjöldi barna ekki pláss í sérdeildum vegna plássleysis og öll höfum við heyrt fréttir af því að einhver börn séu ekki að fá skólavist og séu jafnvel búin að vera án skóla í allt að tvö ár.

Virðulegi forseti. Þetta er staða sem er algerlega óásættanleg. Lögin gera kröfu um skólaskyldu og þá ber okkur eflaust líka — í rauninni þurfum við að axla þá ábyrgð og setja á okkur þá kröfu að útvega úrræði, útvega pláss svo allir geti fengið nám við hæfi. Foreldrar og kennarar hafa ítrekað kallað eftir auknum stuðningi og eins höfum við verið að reyna að finna lausnir.

Það er víða pottur brotinn og mig langar rétt í lokin að fara inn á námsmatið. Foreldrar hafa verið að kalla eftir því að fá að skilja námslega stöðu barna sinna en samt segja margir að þeir skilji vart núverandi námsmat. Samkvæmt könnun Maskínu þá vilja 81% landsmanna að tölueinkunnir verði áfram hluti námsmats. Þetta kallar á gagnsæi og aukinn skýrleika. Vissulega er endurgjöf mjög mikilvæg og forsenda þess að við getum gripið inn í og hjálpað nemandanum og stutt við börnin svo þau sýni framfarir. Hins vegar er líka mikilvægt að bæði nemendur og foreldrar geti skilið og áttað sig á námslegri stöðu barnsins. Er eitthvað því til fyrirstöðu að hafa einkunnagjöf skýrari? (Forseti hringir.)

Virðulegi forseti. Ég næ ekki að fara yfir allt sem mig langaði að gera, ég næ því kannski í seinni ræðu. En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra í lokin: Ætlar hæstv. ráðherra að endurskoða samsetningu kennaranáms miðað við stöðuna í dag (Forseti hringir.) og hyggst ráðherra tryggja meiri fjármuni til íslenskukennslu og lestrarkennslu heldur en gert er? Og hver eru næstu skref hæstv. ráðherra? Því að það er augljóst að aðgerða er þörf.