Menntamál.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir þessa umræðu. Ég veit vel að íslenskt menntakerfi stendur frammi fyrir fjölmörgum áskorunum. Við vitum það öll. Niðurstöður PISA eru ekki góðar og við þurfum að bæta lestrarhæfni barna og við þurfum að grípa fyrr inn í mál þar sem þess er þörf. Börnum með erlendan bakgrunn hefur fjölgað mikið. Þarfir nemenda hafa í mörgum tilfellum vaxið til muna og álag hefur aukist hjá starfsfólki skóla. Það er nefnilega einnig innviðaskuld í skólakerfinu. Auðvitað vitum við öll að það er líka margt gott við menntakerfið okkar. Það er opið, sveigjanlegt og með öflugan mannauð innanborðs, en við þurfum að tryggja að kerfið geti mætt mun betur fjölbreyttum þörfum nemenda og starfsfólks.
Virðulegur forseti. Hér er spurt hvernig við getum brugðist við þessum áskorunum. Mig langar að nefna sex atriði sem ég og við í menntamálaráðuneytinu erum að gera. Í fyrsta lagi erum við núna að vinna að nýjum gagnagrunni sem heldur utan um skráningarupplýsingar um alla íslenska nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hvaða máli skiptir gagnagrunnur í þessu öllu saman? Jú, því núna getum við í fyrsta sinn fengið yfirsýn yfir stöðu einstakra barna þvert á kerfi. Þetta skapar tækifæri til að grípa fyrr inn í mál og það hefur lengi verið bent á nauðsyn á slíku.
Í öðru lagi munu nýju samræmdu prófin skipta máli. Þessi stöðu- og framvindupróf munu mæla framfarir nemenda í staðinn fyrir að vera einhver einstök punktmæling eins og gömlu samræmdu prófin voru. Nú verður hægt að fylgjast með árangri sérhvers barns og grípa inn í sé þörf á því. Því til viðbótar munu nemendur, foreldrar og skólar nú geta borið sig saman við landsmeðaltal og stjórnvöld geta borið saman skóla og landsvæði.
Í þriðja lagi mun ég leggja á næsta ári fram sérstakt frumvarp um skólaþjónustu sem m.a. tekur á stóraukinni stoðþjónustu innan skólanna. Það hefur lengi verið kallað eftir betri stuðningi innan skólanna og verður þetta frumvarp lykilþáttur í því.
Í fjórða lagi hefur nú verið stofnað sérstakt landsteymi um farsæld barna sem getur komið inn í skóla þegar þörf er á. Með þessu landsteymi gætu skólar fengið ráðgjöf og stuðning í þyngstu málum skólakerfisins um allt land.
Í fimmta lagi vil ég sérstaklega nefna hið öfluga verkefni sem kallast MEMM; menntun, móttaka og menning. Með þessu verkefni er verið að bregðast við ákalli um bætta menntun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Þetta verkefni inniheldur mörg verkfæri fyrir kennara, svo sem námsefni í íslensku sem öðru tungumáli, leiðbeiningar um gerð og móttökuáætlun og stöðumat fyrir nýkomna nemendur. Markmiðið er að efla inngildingu, stuðning og ráðgjöf á landsvísu þannig að öll börn fái sem besta byrjun.
Í sjötta lagi mun ég brátt setja samræmdar reglur um símafrí í skólum. Rannsóknir sýna að það skiptir máli bæði fyrir námsárangur og félagsleg tengsl. Ég vil sérstaklega fagna þeim viðtökum sem ég hef fengið í þessu máli.
Þá mun ég einnig gera námsgögn gjaldfrjáls, leggja fram fyrstu aðgerðaáætlun gegn fátækt barna og efla framhaldsskólakerfið með aukinni stoðþjónustu.
Virðulegur forseti. Hér má því sjá að ég átta mig á því að það er ýmislegt sem þarf að gera en það er líka ýmislegt sem er verið að gera. Við verðum að vinna saman að því að bæta íslenskt menntakerfi. Það er okkar sameiginlega ábyrgð að tryggja að allir nemendur fái þá menntun sem þeir þurfa til að blómstra í nútímasamfélagi. Ég held að við getum alveg tekið höndum saman um það að við erum og eigum að sjá til þess að allir nemendur, hvar sem þeir eru, fái gæðamenntun á hverjum tíma.