Menntamál.
Virðulegur forseti. Sem þingmaður Samfylkingarinnar vil ég leggja áherslu á að menntakerfið sé eitt mikilvægasta jöfnunartæki samfélagsins. Við trúum því að menntun eigi að skapa tækifæri fyrir öll, að enginn standi utan kerfisins vegna uppruna, tungumáls eða félagslegra aðstæðna. Samfélag okkar er að breytast og fjölbreytileiki eykst, sem krefst þess að við hugsum menntamál út frá jafnrétti, aðgengi og gæðum. Við viljum sjá menntakerfi sem bregst snemma við, veitir öfluga stoðþjónustu og tryggir að hver nemandi fái viðeigandi stuðning. Þannig byggjum við upp traustan grunn að árangri, vellíðan og samfélagslegri þátttöku allra nemenda. Það á einnig við um íslenskukennslu, fjölbreytt námsmat og kennsluhætti sem endurspegla raunverulega færni.
Ég vil jafnframt leggja sérstaklega áherslu á mikilvægi uppbyggingar og þróunar starfsnáms. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, sem liggur nú fyrir, felur í sér mikilvæg skref til að styrkja starfsnám og tengsl skóla og atvinnulífs. Atvinnulífið þarf vel menntað fólk og öflugt vinnustaðanám og skýra umgjörð sem tryggir bæði réttindi og gæði. Ferilbókin, sem er þegar komin í notkun í stafrænni mynd og leysir af gömlu námssamningana við atvinnulífið, hefur reynst vel og eykur ábyrgð, gagnsæi og raunhæft námsmat í starfsnámi.
Að lokum vil ég fagna því að þegar hefur verið staðfest að hafist verði handa við viðbyggingar við fjóra verknámsskóla og að í framhaldinu verði ráðist í framkvæmdir við fleiri skóla. Það er brýnt og mikilvægt að tryggja öruggan aðbúnað og jafnt aðgengi að verknámi óháð búsetu. Þetta eru verkefni sem falla að stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og þeirri framtíðarsýn Samfylkingarinnar að fjárfesting í menntun sé ein sú besta sem þjóð getur ráðist í.