Menntamál.
Virðulegi forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessa umræðu sem við eigum hér í dag. Mig langar til að skora á hæstv. ráðherra að taka þrennt frá umræðunni hér og hrinda því í framkvæmd. Það hefur verið nefnt hérna áður en þetta er bara til að skerpa á þessum þáttum.
Eitt er varðandi símabannið, símafrí eða símabann. Ég hvet hæstv. ráðherra til að vera djarfur hérna, því að við sjáum það í öllum rannsóknum að vanlíðan og verri einkunnir eru tengdar við símanotkun í skólum. Hvað er það sem við erum að glíma við hér á Íslandi? Við erum að glíma við vanlíðan ungs fólks og við erum að glíma við verri einkunnir. Verum djörf hér; setjum ekkert símafrí með einhverjum samræmdum reglum. Setjum alvörubann og áttum okkur á því að við getum alltaf tekið skref til baka. Ég persónulega er sannfærð um það að á símanotkun verði litið sambærilegum augum og reykingar áður. Tækifærið fyrir okkur til að takast á við þennan vanda er núna. Ég hvet þig til dáða, hæstv. ráðherra.
Í annan stað er það íslenskukennslan sem allir hafa nefnt hér. Við erum að tala um að í mörgum sveitarfélögum er hlutfall erlendra íbúa orðið tugir prósenta. Við tölum svo oft um innviðaskuld en ég er sannfærð um að þegar við horfum á framtíðina þá eru þetta brýrnar sem við þurfum að vera að fjárfesta í. Ég er að leggja fram breytingartillögu til að setja meira fjármagn í íslenskukennslu í grunnskólum og það væri heiður einn að fá að vinna með hæstv. ráðherra að því að koma því máli áfram.
Að lokum vil ég nefna einkunnakerfið. Pössum okkur. Við viljum að allir fái jöfn tækifæri, að það sé jafnræði, en pössum okkur á því að eyðileggja ekki hvatann til að skara fram úr. „Að vera á réttri leið.“ „Hæfni náð.“ Það er munur á slíkri (Forseti hringir.) nálgun og því þegar börn geta keppt í að fá 6 eða 6,5, 7 eða 7,5 eða 9 eða 9,5. Við þurfum að skapa þann samkeppnishvata því að fólkið okkar (Forseti hringir.) keppir á erlendum vettvangi og nær síðan árangri fyrir samfélagið okkar hérna heima.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir umræðuna og ég hvet hæstv. ráðherra til dáða.